Úrval Útsýn kynnir fræðandi, skemmtilega og mjög fjölbreytta siglingu með Brilliance of the Seas frá Royal Caribbean skipafélaginu. Flogið er til Dubai í gegnum London og dvalið þar í 2 nætur áður en haldið er um borð í þetta fljótandi lúxushótel. Brilliance of the Seas var sjósett árið 2002 en árið 2009 var skipið endurnýjað að fullu.
Alls tekur þetta glæsilega skip 2.500 farþega auk áhafnar. Fjölbreytt afþreyting er í boði um borð svo sem spilavíti, heilsulind, barir, veitingastaðir, klifurveggur, körfuboltavöllur og leikhús. Ekki má gleyma glæsilegu sundlaugarsvæði. Vistaverur eru með tvíbreiðu rúmi eða tveimur einstaklingsrúmum, setustofu, sjónvarpi, ísskáp, minibar og öryggishólfi. Val um gistingu í innri-, ytri- eða klefa með svölum. Allt fæði um borð er innifalið
Ótrúleg afþreying í boði um borð!
Þetta glæsilega skip er búið nær öllu er hugurinn girnist, enda 360 metrar á lengd og með rými fyrir 6.300 farþega. Barir, veitingahús, leiksýningar og skemmtanir eru hvarvetna í boði, ásamt ævintýralegu sundlaugasvæði
Skipafélagið Royal Caribbean
Úrval Útsýn er með einkasamning við Royal Caribbean Cruises, eitt stærsta skipafélagið, og hafa hundruð Íslendinga upplifað drauminn. RCCL er með 20 glæsiskip í sínum flota og á hverju ári er nýju skipi hleypt af stokkunum. Meðal skipa í flota félagsins eru stærstu skemmtiferðaskip í heimi. Þjónusta og allur aðbúnaður er fyrsta flokks í skemmtiferðaskipunum sem sigla um öll heimsins höf, þar á meðal Karíbahafið, Miðjarðarhafið, Suður-Ameríku og Asíu.
www.royalcaribbean.com
INNIFALIÐ Í VERÐI FERÐAR?
- Flug til London og Dubai og frá Róm til Íslands um Kaupmannahöfn
- Gisting í tvær nætur á Movenpick Hotel Deira í Dubai. Morgunverður innifalinn
- Hálfs dags skoðunarferð um Dubai
- Skemmtisigling með fullu fæði og afþreyingu í 15 nætur
- Þjórfé um borð í skipinu
- Allar ferðir milli flugvalla, hótela og skips
- Skoðunarferðir á áfangastöðum skipsins
- áfengir drykkir
- Vegabréfs áritanir þar sem það á við.
- Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns.
- Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki. Ath: Verið miðast við gengi og flugvallarskatta 9.9.2011.
FERÐATILHÖGUN
17.apríl - Brottför frá Keflavík
Morgunflug til London og síðdegisflug með hinu glæsilega flugfélagi Emirates til Dubai. Lending í Dubai kl. 02:50 þann 18. apríl. Hópnum ekið á Movenpick Hotel Deira, glæsilegt 5 stjörnu hótel. Movenpick er nýtískulega innréttað og vel búið nýjustu þægindum. Á þaki hótelsins er glæsileg sundlaug með stórbrotnu útsýni yfir borgina. Á hótelinu er margir veitingastaðir og þjónusta fyrsta flokks
18.apríl - Dubai
Hálfs dags skoðunarferð um Dubai. Þessa stórbrotna borg hefur hefur oft verið kölluð "Perla Persaflóans". Þar hefur uppbygging og ferðamannaiðnaður þróast á ótrúlegum hraða. Borgin tilheyrir Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem er eitt ríkasta land í heimi. Helstu atvinnugreinar eru fjármálaþjónusta, olíuframleiðsla, verslun og ferðaþjónusta. Borgin er fjölmenningarlegur staður og þar býr fólk frá öllum heimshornum. Í borginni er mikið úrval af veitingastöðum, mörkuðum og stórum verslunarhúsum. Verslunarhúsin Mall of the Emirates og The Dubai Mall eru sér á báti. Þar er m.a. að finna skíðabrekku, skautasvell, gosbrunna, óperuhús og heimsins stærsta fiskabúr. Matargerð í Dubai er fjölbreytt og íbúarnir eru almennt afar alúðlegir og frjálslyndir
19. apríl - Á siglingu
Morgunverður snæddur á hótelinu. Hópurinn sóttur og ekið að höfninni þar sem glæsiskipið Brilliance of the Seas leggur úr höfn kl. 17:00.
20. apríl. Muscat, Oman
Rétt eftir hádegi er siglt inn til Muscat, höfuðborg Oman sem er ein elsta borg Mið-Austurlanda. Höll soldánsins í Óman, sem var byggð í kringum 1970, gnæfir yfir ströndinni. Borgin á sér sögu frá 6. öld f.Kr. þegar Persar höfðu þar yfirráð. Á árunum 1508-1650 var borgin undir yfirráðum Portúgala og síðan Írana. Muscat var höfuðborg hins sjálfstæða ríkis Masqat og Óman árið 1741. Árið 1970 var nafni landsins breytt í Óman. Borgin var lengi lokuð ferðamönnum en hefur undanfarna áratugi opnast æ meir og hafa yfirvöld nú lagt ríka áherslu á að fjölga ferðamönnum í borginni. Fjöldi glæsihótela hafa risið þar undanfarin ár. Matarmenning í Óman er fjölbreytt og þar blandast saman asískar og arabískar matarhefðir.
21.-25. apríl – á siglingu
Hér gefst gott tækifæri til afslöppunar og þess að njóta þjónustunnar um borð. Skreppa í heilsulindina, skoða í verslanir eða kíkja í leikhúsið. Ekki má gleyma fjölbreyttum veitingum og 4 rétta kvöldmáltíðum sem eru innifaldar í verðinu.
26. apríl – Aqaba, Jordanía
Að morgni 26 apríl er siglt inn til hafnarborgin Aqaba í Jórdaníu. Borgin stendur við samnefndan flóa við Rauðahafið. Í Aqaba eru í boði margar skipulagðar skoðunarferðir. Hvort heldur þú vilt slappa af á ströndinni við Rauðahafið, eða fara margar aldir aftur í tímann í heimsókn til „týndu borinnar“ Petra þá ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Jeppaferð í eyðimörkina þar sem tíminn hefur svo sannarlega staðið í stað svíkur engan. Fyrir þá sem vilja eyða deginum í Aqaba þá er heimsókn á veitingastaðinn Ali Baba í Pricess Haya Circle hverfinu ómissandi. Haldið úr höfn kl. 20:00
27. apríl – Safaga, Egyptaland
Snemma morguns þann 27 apríl er siglt inn til Safaga í Egyptalandi. Saga þessarrar hafnaborgar nær aftur til upphafs 19. aldar þegar borgin var lítið hafnarþorp og Englendingar réðu þar ríkjum. Í dag er borgin og svæðið þar í kring eitt nýjasta heilsulindar- og sjósport svæði Egyptalands. Þá eru einstakar aðstæður til köfunar á þessu svæði. Vinsælt er að fara í skoðunarferðir með kafbát eða út i eyðimörkina. Á þessum áfangastað gefst nægur tími þar sem haldið er úr höfn kl. 23:00.
28. apríl – Sharm El Sheikh, Egyptaland
Komutími til Sharm El Sheikh er kl. 7:00 að morgni. Staðurinn er nú orðinn vinsælasti sólardvalarstaður í Afríku. Þangað koma milljónir ferðamanna ár hvert. Borgin er staðsett á Sinai skaganum nálagt Sinai eyðimörkinni. Bærinn var áður lítið fiskimannaþorp en nú búa þar um 100 þúsund manns og 90% þeirra starfa við ferðaþjónustu. Í boði verða 5 mismunandi skoðunarferðir á þessum áfangastað. Haldið úr höfn kl. 16:00
29. apríl – Suez skurður
Suez skurðurinn liggur í gegnum hið 112 km langa Suezeiði á milli Asíu og Afríku. Skurðurinn tengir Miðjarðar—og Rauðahaf og gerir siglingar milli Atlantshafs og Indlandshafs mögulegar. Skurðinn var formlega opnaður í nóvember 1869 eftir að unnið hafði verið að opnun hans í 10 ár. Verkið þykir mikið afrek og til eru heimilidir allt til ársins 600 f. Krist um tilraunir til þess að tengja ána Níl við Rauðahaf. Í dag er skurðurinn hlutlaust svæði undir stjórn Egypta.
30.apríl – 1.maí - Alexandria, Egyptaland
Að morgni 30.apríl er siglt inn til Alexandríu. Skipið leggur ekki úr höfn fyrr en að kvöldi þann 1.maí svo nægur tími gefst til skoðunarferða á þessum merka áfangastað. Alexandría er önnur stærsta borg Egyptalands og mikilvægasta hafnarborg landsins. Hún stendur á sandrifi sem skilur að Mareotishaf og Miðjarðarhaf. Við fyrstu sýn er borgin vestræn af yfirbragði en gamli borgarhlutinn ber með sér austrænan svip og líf. Í boði eru 14 skoðunarferðir allt frá hálfs dags ferðum til skoðunarferða þar sem dvalið verður yfir nótt.
2.- 3. maí – Á siglingu
Eftir upplifun og ferðalög síðustu daga gefst kjörið tækifæri á að njóta dvalarinnar um borð áður en haldið er í höfn í Róm.
4. maí - Róm
Að morgni þann 4.maí er komið í höfn í Róm. Hópnum ekið frá skipi á flugvöll þar sem haldið er í flug til Kaupmannahafnar. Brottför kl. 14:50, lending í Kaupmannahöfn kl. 17:20. Kvöldiðflug frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur.
Siglingarleið Brillance of the Seas
| Dags. |
Höfn |
Koma |
Brottför |
| 19. apríl. |
Dubai |
|
17:00 |
| 20. apríl. |
Muscat |
|
|
| 21-25. apríl. |
Á siglingu |
|
|
| 26. apríl. |
Aqaba |
06:00 |
20:00 |
| 27. apríl. |
Safaga |
07:00
|
23:00 |
| 28. apríl. |
Sharm El Sheikh |
07:00 |
16:00 |
| 29. apríl. |
Suez skurður |
06:00 |
20:00 |
| 30. apríl. |
Alexandría |
07:00 |
|
| 1.maí |
Alexandría |
|
21:00 |
| 2.-3. maí. |
á siglingu |
|
|
| 4. maí. |
Róm |
04:30 |
|