Allure of the Seas: Vestur Karíbahaf

    • Um ferðina
    • Hótel
    • Bóka
    • Myndir
    Allure of the Seas: Vestur Karíbahaf
    19. okt - 1. nóv 2012
    Verð frá á mann:
    334.900 kr.

    Um ferðina:

    Úrval Útsýn kynnir með stolti, Allure of the Seas, stærsta farþegaskip í heimi sem sjósett var þann í desember  2010  og er nýjasta skipið í flota Royal Caribbean . Skipafélagið Royal Caribbean Cruiseline kynnir til leiks annað glæsilegt skip í Oasis klassa og eru þau 2 skipin af þessari stærð, fljótandi 5 stjörnu hótel sem undirstrikar að skemmtisiglingar eru ævintýri og upplifun sem seint gleymist.

    Í þessari ferð verður siglt um Vestur - Karíbahaf og komið við á hinum undirfögru eyjum Haiti og  Jamaica.  Frá Jamaica er siglt til  Conzumel í Mexíkó áður en haldið er aftur til Ft.Lauderdale. Dvalið er í tvær nætur í Orlando fyrir siglingu og 3 nætur eftir siglingu.  Karíbahafið er er dásamlegur leikvöllur fyrir köfun og sund, sólböð og afslöppun, verslunarferðir og golf. Við verðum umkringd drifhvítum ströndum, blágrænu hafi og fegurstu eyjum heims.


    ÓTRÚLEG AFÞREYING UM BORÐ!

    Þetta glæsilega skip er búið nær öllu er hugurinn girnist, enda 360 metrar á lengd og með rými fyrir 6.300 farþega. Barir, veitingahús, leiksýningar og skemmtanir eru hvarvetna í boði, ásamt ævintýralegu sundlaugasvæði.
    Flogið verður til og frá Orlando og gist í tvær nætur á Florida Mall Hotel  áður en haldið er í siglinguna.  Í lok ferðar er gist í 3 nætur á  International Palm Resort



    Skipafélagið Royal Caribbean

    Úrval Útsýn er með einkasamning við Royal Caribbean Cruises, eitt stærsta skipafélagið, og hafa hundruð Íslendinga upplifað drauminn. RCCL er með 20 glæsiskip í sínum flota og á hverju ári er nýju skipi hleypt af stokkunum. Meðal skipa í flota félagsins eru stærstu skemmtiferðaskip í heimi.  Þjónusta og allur aðbúnaður er fyrsta flokks í skemmtiferðaskipunum sem sigla um öll heimsins höf, þar á meðal Karíbahafið, Miðjarðarhafið, Suður-Ameríku og Asíu. www.royalcaribbean.com



    INNIFALIÐ Í VERÐI FERÐAR?

    • Flug til og frá Orlando
    • Gisting á  Florida Mall Hotel tvær nætur með morgunverði
    • Skemmtisigling með fullu fæði og afþreyingu í 7 nætur
    • Gisting á International Palms Resort  3 nætur með morgunverði eftir siglingu
    • Þjórfé um borð í skipinu
    • Allar ferðir milli flugvalla, hótela og skips


    Ekki innifalið í verði ferðar
    • Skoðunarferðir á áfangastöðum skipsins
    • áfengir drykkir

    • Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns.
      Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki.

      Ath: Verið miðast við gengi og flugvallarskatta 12.09.2011.

      Verð

      Verð á mann í tvíbýli kr. 334.900.- innri klefi
      Verð á mann í tvíbýli kr. 343.900.- ytri klefi
      Verð á mann í tvíbýli kr. 359.900.- klefi með svölum



    FERÐATILHÖGUN


    Brottför

    Dags.

    Kl.

    Koma

    Dags.

    Kl.

    Keflavík

    19.okt

    17:10

    Orlando

    19.okt

    20:55

    Sigling

    21.okt

    17:00

    Ft.Lauderdale

    28.okt

    07:00

    Orlando

    31. okt

    19:00

    Keflavík

    1.nóv

    06:10


    19. október - Brottför frá Keflavík

    *Sjá ferðalýsingu í töflu hér fyrir ofan. 
    Dvalið í tvær nætur á  Florida Mall Hotel  

    20. október - Orlando

    Lífsins notið í Orlando, hvort sem notið veðurblíðunar, skoðað sig um eða kíkt í hinar fjölmörgu verslanir sem í boði eru.

    21. október - Ft.Lauderdale

    Ekið verður frá Orlando til Ft.Lauderdale og tekur aksturinn um 4 klst. og farið um borð í Allure of the Seas einn glæsilegasta farkost Royal Caribbean Cruise Lines.

    22. október

    Svifið á öldum Karíbahafsins og tilvalið að njóta allra þeirra dásemda, sem skipið hefur upp á bjóða.   Daginn má nota til hvíldar og sólbaða.  Gott er að nýta tímann til að læra að rata um skipið eða kíkja í verslanir á hinni löngu verslunargötu.  Einnig er hægt að fara í heilsu- eða líkamsrækt eða klifra í hinum 13 metra háa klifurvegg.  Á meðan við látum okkur líða vel á einn eða annan hátt, undirbúa matreiðslumenn 5 rétta veislumat sem bíður okkar ásamt uppáklæddum þjónum þegar við göngum í veislusalinn.

    23. október - Á siglingu

    Fyrsti viðkomustaðurinn er þorpið Labadee á Haiti.  Einungis farþegar Royal Caribbean skipafélagsins komast á þessa fallegu eyju sem hefur að geyma bestu strendur Karíbahafsins

    24. október - Falmouth, Jamaica

    Eftir morgunverð þann 24. október verður siglt að norðurhluta Jamaica , og komið inn til hafnar í  Falmouth.  Það er eins og að koma margar aldir aftur í tímann að heimsækja þennan fallega stað. Falmouth var mikilvæg hafnarborg á 17. og 18. öld og þaðan var flutt kaffi, romm og sykur í miklu mæli til Evrópu.   Í Falmouth eru margar skemmtilegar handverksbúðir sem vert er að heimsækja.

    25. október - á siglingu

    Lífsins notið á stærsta skemmtiferðaskipi í heimi á meðan siglt er frá Jamaica áleiðis til Mexíkó.

    26. október - Cozumel í Mexíkó

    Eyjan Conzumel sem staðsett er undan ströndum Yucatan skaga er einstaklega falleg og gróðursæl eyja.  All umhverfis eyjuna eru falleg kóralrif og gefst því  tækifæri á köfun við einstakar aðstæður.  Maya rústir eru einnig ómissandi hluti af Mexikó en þær er hægt að heimsækja í einni af skoðunarferðunum sem boðið er uppáa.

    27.október - á siglingu
    28.október - 31.október

    Komið að landi í Fort Lauderdale og eftir morgunverð er ekið til Orlando

    Dvalið er í International Palms Resort  í 3 nætur.   International Palms Resort er 3 stjörnu hótel mjög vel staðsett við International Drive. Stutt í fjölda veitingahúsa og í fjölda skemmtigarða á svæðinu.   Stór og góð sundlaug með góðri sólbaðsaðstöðu.  Á hótelinu er veitingahús, bar, líkamsræktaraðstaða.  I-Ride Trolley, strætisvagnaþjónustan sem gengur eftir Inernational Drive, stoppar við hótelið.

    31.október

    Ekið frá International Palms Resort  áleiðis til Sanford flugvallar.  Brottför kl. 1900.  Lending í Keflavík kl 06:10 næsta dag.
    *Sjá ferðalýsingu í töflu hér fyrir ofan..

    Siglingarleið Adventure of the Seas

    Dags.

    Höfn

    Koma

    Brottför

    21.okt.

    Ft. Lauderdale, Flórída

    17:00

    22. okt

    Á siglingu

    23. okt.

    Labadee, Haiti

    07:00

    16:00

    24. okt..

    Falmouth, Jamaica

    10:00

    19:00

    25. okt.

    Á siglingu

    26. okt.

    Conzumel, Mexico

    08:00

    19:00

    27. okt.

    Á siglingu

    28. okt.

    Ft. Lauderdale,  Flórída

    07:00

    Gistingar í þessari ferð:

    Allure of the Seas

    Stjörnugjöf: 5

    Allure of the Seas

    Stjörnugjöf: 5

    Allure of the Seas

    Stjörnugjöf: 5

    Skoðunarferðir í boði:

    Bókun:

    Vinsamlegast fylltu út þá liði sem eru hér fyrir neðan til að ganga frá bókuninni.

    1. 1Ferð

      Brottför, flug
      Flogið frá
      Lent í
      Heimkoma, flug
      Flogið frá
      Lent í
    2. 2Gisting

      Allure of the Seas

      Stjörnugjöf: 5
      Farþegaeinkunn:
      Veldu herbergistegund (verð inniheldur flug, hótel og skatta)
      (D7) Allure of the Seas. Klefi með svölum Verð pr. farþega: 0
      Heildarverð: 0

      Allure of the Seas

      Stjörnugjöf: 5
      Farþegaeinkunn:
      Veldu herbergistegund (verð inniheldur flug, hótel og skatta)
      (H) Allure of the Seas. Ytri klefi Verð pr. farþega: 0
      Heildarverð: 0

      Allure of the Seas

      Stjörnugjöf: 5
      Farþegaeinkunn:
      Veldu herbergistegund (verð inniheldur flug, hótel og skatta)
      (M) Allure of the Seas. Innri klefi Verð pr. farþega: 0
      Heildarverð: 0
    3. 3Þjónusta

    4. 4Samantekt

      Heildarverð: kr. 0

    Myndasafn:

    Smelltu á myndina til að sjá stærri útgáfu

    640RCI_Oasis_Aerial098.jpg
    640RCI_Oasis_Aerial166.jpg
    640RCI_Oasis_Aerial207.jpg
    640RCI_Oasis_Aerial214.jpg
    640RCI_Oasis_Aerial275.jpg
    640RCI_Oasis_CentralPark143.jpg
    640RCI_Oasis_CentralPark161_.jpg
    640RCI_Oasis_CPbalconyview_senior.jpg
    Allure_of_the_Seas_ext.jpg
    allureoftheseas_kort.gif
    OasisoftheSeas-AquaTheater1.jpg
    OasisoftheSeas-AquaTheater2.jpg
    OasisoftheSeas-AquaTheater3.jpg
    OasisoftheSeas-AquaTheater4.jpg
    OasisoftheSeas-Boardwalk-RisingTideDown.jpg
    Oasis-of-the-Seas-photo-1.jpg
    Oasis-of-the-Seas-photo-2.jpg
    Oasis-of-the-Seas-photo-3.jpg
    allureoftheseas_header.jpg