Gott að vita um Kenýa og Mombasa
Fjarlægðir
Frá Moi alþjóðaflugvelli er um 1,5 tíma akstur að hótelum sem eru um 30 km
suður af Mombasa.
Gjaldmiðill
Kenískur shillingur (KES). Um 100 kenískir shillingar fást fyrir 125 krónur,
og um 70 shillingar á dollarinn. Reiknaðu út gengið á Oanda.
Dollarar og evrur koma sér vel. Athugið að dollaraseðlar þurfa að vera yngri
en árgerð 2000 (frá 2001 eða síðar).
Greiðslukort
Víðast hvar er tekið við flestum almennum greiðslukortum nema í litlum
veitingahúsum og verslunum. Hraðbanki er í um 5 mín. akstursfjarlægð frá hótelum
og opið allan sólarhringinn.
Handfarangur
Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um
handfarangur.
Rafmagn
240 volt, 50 Hz. Athugið að innstungur eru breskar - takið með fjölnota
millistykki, en þau er hægt að fá á flugvöllum.
Samgöngur (innan strandar – til Mombasa)
Frá hótelum er hægt að ganga (10-20 mín.) í litlar búðir og
minjagripaverslanir. Best er að taka leigubíl til að byrja með og átta sig á
staðháttum.
Ef farið er á eigin vegum inn í Mombasa er nauðsynlegt að fara með
leigubíl.
Land og þjóð
Frekari
upplýsingar um land og þjóð - á afrika.is.
Vegabréf
Íslenskir ríkisborgarar þurfa ekki vegabréfsáritun en þeir þurfa að hafa
vegabréf sem gildir í a.m.k. 3 mánuði fram yfrir áætlaðan brottfarardag.
Ónæmisvarnir
Við mælum með malaríupillum, en á vef Landlæknisembættisins segir:
- Vegna ferða til hitabeltislanda er ávallt ráðlegt að leita læknis, helst 2
mánuðum áður en lagt er í ferðina, til þess að hægt sé að framkvæma nauðsynlegar
bólusetningar.
- Nánari upplýsingar og bólusetningar fást á öllum heilsugæslustöðvum, Miðstöð
heilsuverndar (áður Heilsuverndarstöð Reykjavíkur) og göngudeild smitsjúkdóma á
Landspítala háskólasjúkrahúsi í Fossvogi.
Frekari
upplýsingar um bólusetningar á vef Landlæknisembættisins.
Tímamismunur
Klukkan í Kenýa er 3 stundum á undan íslenskum tíma.
Verslun
Opnunartími er almennt frá 8:30 til 18:00 alla virka daga nema sunnudaga.
Verslanir eru meðfram veginum sem liggur norður-suður með Diani ströndinni og
þar má fá mikið af handunninni vöru.
Veitingastaðir
Fjöldi veitingastaða er við Diani ströndina og úrvalið frá flestum
heimshornum. Mikið er um góða sjávarréttastaði og á hótelunum eru gjarnan fleiri
en einn veitingastaður.
Þjórfé
Það tíðkast að skilja eftir þjórfé á veitingastöðum, algengast er að skilja
eftir 10%. Einnig er oft gefið smá þjórfé til leigubílstjóra og vikapilta.
Veðurfar
Heitasti tíminn er frá desember - febrúar, en svalast í maí - júlí. Á daginn
er meðalhiti við ströndina um 25-30 gráður, en svalara á kvöldin.
Tungumál
Fyrsta tungumál Kenýabúa er þeirra eigið ættbálkatungumál en Swahili og enska
eru opinber tungumál. Hér má nálgast stuttan
lista með helstu orðum á Swahili.