Skemmtisigling — Austur-Karíbahaf og Flórída

Miami – Florida, Philipsburg – St. Maarten, San Juan – Puerto Rico, Labadee – Haiti, Miami – Florida

2.–11. október 2010


Liberty of the Seas


Úrval Útsýn kynnir með stolti, Liberty of the Seas, eitt stærsta og mikilfenglegasta skemmtiferðaskip heims. Skipið er eitt af nýjustu viðbótum Royal Caribbean skipafélagsins en það fór jómfrúarferð sína í maí 2007. Það hefur einstaka eiginleika og aðstöðu, t.d. vatnagarð með brimbrettaaðstöðu, skautasvell, klifurvegg, verslunargötu og skemmtistaði svo fátt eitt sé nefnt. Liberty of the Seas er sannkallað fljótandi 5 stjörnu hótel sem undirstrikar að skemmtisiglingar eru ævintýri og upplifun sem seint gleymist.

Þetta glæsilega skip er búið nær öllu er hugurinn girnist. Barir, veitingahús, leiksýningar og skemmtanir eru hvarvetna í boði, ásamt ævintýralegu sundlaugasvæði.

Flogið verður til Orlando 2. október og gist í eina nótt á Baymont Inn & Suites á International Drive áður en haldið verður til Miami, en skipið leggur úr höfn kl 16:30. Siglingin stendur yfir 3.–10. október. Snemma morguns 10. október er komið aftur í höfn í Miami og hópnum ekið til Orlando og flogið heim kl. 17:30 sama kvöld.

 

Innifalið í verði ferðar

  • Flug til og frá Orlando
  • Gisting á Baymont Inn & Suites í Orlando með morgunverð í eina nótt
  • Skemmtisigling með fullu fæði og afþreyingu í 7 nætur
  • Þjórfé um borð í skipinu
  • Allar ferðir milli flugvalla, hótels og skips

Ekki innifalið

  • Skoðunarferðir á áfangastöðum skipsins

Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns.
Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki.