Liberty of the Seas

Dagskrá ferðarinnar

2. október – Brottför frá Keflavík
Flogið til Orlando. Brottför frá Keflavík kl. 10:00 og lending í Orlando kl. 19:45. Dvalið í eina nótt á Baymont Inn & Suites á International Drive í Orlando. Morgunverður innifalinn.

3. október – Miami
Ekið verður frá Orlando til Miami og tekur aksturinn um 4 klst. og farið um borð í Liberty of the Seas, einn nýjasta og glæsilegasta farkost Royal Caribbean Cruise.
Akkerum létt kl. 16:30.

4. og 5. október – Sigling
Svifið á öldum Karíbahafsins og tilvalið að njóta allra þeirra dásemda, sem skipið hefur upp á bjóða.

6. október – St. Maarten
Á St. Maarten eyjunni földu sig nokkrir franskir og hollenskir hermenn þegar spánverjar lokuðu virki sínu 1648 og ákváðu að skipta á milli sín eyjunni. Skömmu eftir það var gerður formlegur samningur milli Frakka og Hollendinga að skipta eyjunni í tvennt og féll Philipsburg í hlut Hollendinga. Eyjan býður uppá endalaust langar strendur, fagurt landslag og notalegt andrúmsloft.

7. október – San Juan
Komið til San Juan, Puerto Rico eyjunnar sem er ein af þeim stærstu í Austur Karíbahafinu. Landslag eyjunnar einkennist af fjöllum, neðanjarðarhellum, kóralrifjum, hvítsendnum ströndum og ótrúlega þéttum regnskógi sem sér eyjunni fyrir fersku vatni. San Juan er höfustaður eyjunnar, stórborg með iðandi mann og viðskiptalífi.

8. október – Labadee
Komið til Labadee, Haiti, sem er eyja í eigu skipafélagsins Royal Caribbean. Þessi glæsilega eyja hefur í dag að geyma frábærar strendur, litfagran sjó og landslag og endalaust úrval af vatnasporti.

9. október – Sigling
Svifið á öldum Karíbahafsins og tilvalið að njóta allra þeirra dásemda, sem skipið hefur upp á bjóða.

10. október – Miami/Orlando
Komið í land á Miami kl 06:00 og ekið til Orlando þar sem flogið verður heim kl. 17:30. Lending í Keflavík 11 október kl. 04:40.

Siglingaleið Liberty of the Seas

Dags. Höfn Koma Brottför
3. okt Miami, Flórida   16:30
4. okt Á siglingu    
5. okt Á siglingu    
6. okt Philipsburg, St. Maarten 09:00 18:00
7. okt San Juan, Puerto Rico 07:00 14:00
8. okt Labadee, Haítí 08:00 16:30
9. okt Á siglingu    
10. okt Miami, Flórída 06:00