Skipið í sýndarveruleika


Liberty of the Seas vegur 160.000 tonn og tekur 3.634 gesti. Það er ein nýjasta viðbót við skipaflota Royal Caribbean skipafélagsins og lagði það í jómfrúarferð sína þann 19. maí árið 2007

Skipið hefur m.a.:

  • Vatnagarð með brimbrettaaðstöðu
  • Skautasvell
  • Klifurvegg
  • Þráðlaust internet og símasamband fyrir farsíma
  • Flatskjá í öllum herbergjum
  • Þemabari (sportbari, kampavínsbari o.fl.)
  • Úrval veitingastaða
  • Spilavíti
  • Golf hermir
  • 9 holu mini-golf völlur
  • Box hring
  • Íþróttavöll
  • Spa og líkamsrækt
  • Sundlaugar
  • Ýmsa afþreyingu fyrir börn og unglinga

Royal Caribbean

Úrval Útsýn er með einkasamning við Royal Caribbean Cruises, eitt stærsta skipafélagið, og hafa hundruð Íslendinga upplifað drauminn. RCCL er með 20 glæsiskip í sínum flota og á hverju ári er nýju skipi hleypt af stokkunum. Meðal skipa í flota félagsins eru stærstu skemmtiferðaskip í heimi, Freedom of the Seas og Liberty of the Seas. Þjónusta og allur aðbúnaður er fyrsta flokks í skemmtiferðaskipunum sem sigla um öll heimsins höf, þar á meðal Karíbahafið, Miðjarðarhafið, Suður-Ameríku og Asíu.

Lífið er ferðalag

Af hverju að einbeita sér að áfangastaðnum þegar hægt er að njóta ferðalagsins? Lífið er ferðalag en ekki áfangastaður!

Ef þú ert að leita að einhverju nýju og öðruvísi í fríinu skaltu kynna þér Royal Caribbean. Þegar þú ferðast með Royal Caribbean ertu ekki bara að fara í frí – þú ert að leggja í ævintýri!

www.royalcaribbean.com