Ný & betri: Golf
Námskeið fyrir konur, 9.-17. október 2010
Umsjón: Bjargey Aðalsteinsdóttir og Nökkvi Gunnarsson
Úrval Útsýn kynnir spennandi golfferð fyrir konur í október. Farið verður til Orlando Florida. Spilað verður golf ásamt úrvals golfkennslu 4 daga, yoga tímar 4 morgna og hótelið er tengt við stóran verslunarkjarna. Njóttu þess að spila og læra golf við frábærar aðstæður, slaka á í leiðinni, versla og skemmta þér í frábærum hópi!
Verð frá:
179.500 kr.-
m.v. 2 saman í herbergi á Floridal Mall Hotel. Innifalið: Flug, skattar, gisting með morgunverði, 4 golfdagar ásamt kennslu og Yogatímar 4 morgna.
Bóka ferð
Borða – biðja – elska
Spennandi ævintýraferð til Indlands!
Úrval Útsýn kynnir sérstaka ævintýra ferð til Indlands í anda metsölubókarinnar „Borða Biðja Elska“ (e. Eat Pray Love). Bókin hefur hlotið einróma lof út um allan heim og verður kvikmyndin, sem byggð er á bókinni, sýnd í helstu bíósölum landsins með Juliu Roberts í aðalhlutverki. Ferðin sjálf er glæsileg konuferð þar sem þér gefst tækifæri til að njóta lífsins, lenda í ævintýrum, huga að líkama og sál og kynnast sjálfri þér og öðrum betur. Snúðu við blaðinu, gríptu gæsina á meðan hún gefst og komdu með í ógleymanlegt ævintýri í hópi skemmtilegra kvenna!
Fyrirhugað er að fara í byrjun árs 2011. Fylgstu vel með á næstu dögum eftir frekari lýsingu, verði og brottfaradagsetningu. Þú getur einnig fylgst með okkur á Facebook þar sem við birtum einnig upplýsingar um ferðina. Smelltu hér til að gerast vinur Ný&Betri á Facebook.
Ný & betri kona (UPPSELT!)
Námskeið fyrir konur, 18.-25. september 2010
Umsjón: Bjargey og Edda Björgvins.
Spennandi vikunámskeið fyrir konur þar sem ofið er saman hnitmiðuðu námskeiði, hreyfingu, næringafræði og gleði. Tekið er á hinum ýmsu hliðum sem snúa að þér: líkamsrækt, að sigra óttann, kjarkæfingar, yoga, hugleiðsla, fyrirlestrar um heilsu, næringu, stress, aukakílóin svo eitthvað sé nefnt.
Námskeiðið verður á Albir á Spáni, með gistingu og aðstöðu á Hótel Albir Playa.
Verð: 139.900 kr.- (UPPSELT!)
m.v. 2 saman í herbergi á hótel Albir Playa. Innifalið: Flug, skattar, gisting með 1/2 fæði, morgunverði og kvöldverði, námskeið og námskeiðsgögn.
Umsögn um námskeiðið
Umsögn um námskeiðið: júní ferð 2009
Eftir einstaklega erfiðan vetur var markmið skólaferðar að „þjappa“ starfsmannahópnum betur saman og fara m.a. í hópefli því til styrktar og einnig að byggja hvert annað upp. Námskeiðið „Ný og betri“ frá Úrval Útsýn stóð fyllilega undir þessum óskum okkar þar sem farið var í andlega og líkamlega næringu, hópefli, sjálfstyrkingu og hreyfingu. Fyrirlestrar þeirra Bjargeyjar og Sirrýjar voru mjög markvissir og vöktu til umhugsunar um eigin líðan og annarra. Skipulag dagskrár var mjög gott og stóðst algjörlega tímaáætlun og efnið var svo áhugavert og fræðandi að enginn vildi láta sig vanta. Námskeiðshaldararnir Bjargey og Sirrý fóru langt fram úr okkar væntingum með jákvæðu og elskulegu viðmóti. Við vorum sammála um að námskeiðið hefði haft mannbætandi áhrif og styrkt okkur bæði sem heild og einstaklinga.
Hópurinn okkar var af báðum kynjum á aldrinum frá 30-70 ára og efnið hentaði öllum. Staðurinn Albir og hótel Kaktus buðu upp á einstaka aðstöðu fyrir þetta námskeið og öll umgjörð var til fyrirmyndar.
f.h. ferðanefndar Kársnesskóla, Arna og Ólöf.
Vá, ég held ég hafi BARA verið jákvæð síðan ég kom frá Spáni og ekki hugsað eina einustu neikvæða hugsun, spáið í það :o)
Stelpur, ég held að þetta sé allra gagnlegasta námskeið sem vinnustaðahópar geta sótt, sérstaklega t.d. fyrir kennara sem vinna allan daginn í mannlegum samskiptum og þeim því mikilvægt að skilja, þekkja og vera sáttir við sjálfa sig.
Ný&Betri námskeið
Ný & Betri kona
18.-25. september 2010
UPPSELT!
Ný & Betri: Golf
9.-17. október 2010
Borða Biðja Elska
2011
Fylgist með!
Umsjón
Bjargey Aðalsteinsdóttir
Bjargey er menntaður íþróttafræðingur og hefur 28 ára reynslu í þolfimikennslu, einkaþjálfun, yoga, konuleikfimi, teygjum og hugleiðslu. Hún hefur einnig haldið fjölda fyrirlestra um næringu og bættan lífsstíl.
Meira um Bjargeyju
Gestakennarar
Edda Björgvinsdóttir
Edda Björgvins er flestum Íslendingum kunn enda hefur hún hefur starfað sem leikari, leikstjóri og höfundur við fjölmörg leikhús og einnig leikstýrt og samið handrit fyrir velflesta starfandi ljósvakamiðla á Íslandi sem og sjónvarpsstöðva. Undanfarin ár hefur Edda þjálfað stjórnendur atvinnulífsins m.a. í tjáningu, fjölmiðlaframkomu og mannlegum samskiptum - ýmist í hópum eða sem einstaklingsþjálfun - og unnið með fjölmörgum fyrirtækjum við undirbúning á öllum mögulegum uppákomum. Sérsvið Eddu er framkoma og sjálfsöryggi, sjálfstraust, fjölmiðlaþjálfun og mannleg samskipti.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi hefur fengist við golfkennslu frá árinu 2001. Árið 2006 útskrifaðist hann sem "Certified Teaching Professional" frá United States Golf Teachers Federation. Frá árinu 2008 hefur hann sótt Golfkennaraskóla PGA á Íslandi.
Frá 1 janúar 2010 hefur Nökkvi verið golfkennari Nesklúbbsins og hefur þar einnig umsjón með afreksstarfi sem og barna- og unglingastarfi klúbbsins.