Bjargey Aðalsteinsdóttir

Bjargey Aðalsteinsdóttir

Bjargey Aðalsteinsdóttir, B.Ed, MA hefur verið tengd líkmasrækt frá 12 ára aldri þegar hún byrjaði að æfa og keppa í víðvangshlaupi, auk þess sem hún keppti í blaki á veturna, og frjálsum íþróttum á vorin. 17 ára hóf hún að kenna þolfimi og er enn að kenna 30 árum síðar.

Hún lauk námi við Íþróttakennaskólann á Laugarvatni 1992 og fór strax sama haust í mastersnám í íþróttavísindum í Bandaríkjunum. Að námi loknu kom hún heim og stofnaði Þokkabót.

Bjargey fór í Kennaraháskóla Íslands og kláraði heimilsfræði árið 2000, var erlendis árin 2001-2002 og stundaði þá fjarnám í indverskri næringafræði (Ayurveda). Hún nam við Anthony Robbins University frá 2002-2005.

Bjargey hefur haft umsjón með námskeiðunum Ný og Betri frá árinu 2004, fyrst í samvinnu við Sumarferðir, en síðar með Úrvali-Útsýn. Ný og betri eru vikulöng námskeið, haldin erlendis, fyrir konur til að bæta lífsstíl sinn.

Bjargey hefur haldið fjölda fyrirlestra um bætta heilsu og mikilvægi hennar. Hún sat 12 vikna Dale Carnegie námskeið haustið 2007. Útskrifaðist með jógakennararéttindi desember 2010.


Umsagnir um Bjargeyju

Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Það hefur verið einkar áhugavert að kynnast Bjargey og fá að njóta hennar geislandi jákvæðu nærveru í haust (2007). Bjargey er fagmanneskja fram í fingurgóma og frábær fyrirmynd fyrir aðrar konur.

Gunnhildur

"Ég er ein af þessum heppnu konum í lífinu því um daginn bauð Grótta mér ásamt öllum konum á Nesinu á kvöldstund um Nýjan og betri lífsstíl. Þessu kvöldi var ótrúlega vel varið, bæði skemmtilegt , uppbyggjandi og eftirminnilegt. Inn kom ég tilbúin að sitja á fyrirlestri um hollustu og heilbrigði. Út fór ég sveitt, þreytt og staðráðin í að hugsa betur um minn frábæra kropp og fara ALDREI í megrunarkúr. Bjargey sem ég vil nefna álfamær í mannsmynd lagði hug sinn og hjarta í námskeiðið og tókst á sinn einstaka hátt á einni kvöldstund að skila okkur út nýjum og betri. Mér finnst allir eiga skilið að fá tækifæri til að verða nýrri og betri með Bjargey.

Takk fyrir mig."

Arna

"Námskeiðið vakti mig til umhugsunar um mikilvægi reglulegrar hreyfingar og hollrar fæðu ásamt því að hlúa vel að sínum innri manni með jákvæðum hugsunum og kærleika. Lífsstílssjúkdómar eins og offita, lungnakrabbamein og áunnin sykursýki eru orðnir gríðarlegt vandamál á Íslandi sem og annars staðar og okkur ber að staldra við og huga að heilsunni, hvort sem er andlega, líkamlega eða félagslega. Það fékk þetta námskeið mig til að gera."

Sjöfn

"Kærar þakkir fyrir frábært kvöld Bjargey, þú ert alveg yndisleg, hvetjandi og lífsglöð."

Þórdís Lára Ingadóttir, tækniteiknari

"Þann 9. Maí 2007 fór ég alla leið frá Hafnarfirði á Ný og betri kvöld í félagsh. Gróttu á Seltjarnanesi. Umræðuefnið vakti áhuga minn en það var um betri heilsu og betra líf. Þetta var mjög áhugaverður fyrirlestur þar sem voru til tilbreytinga engar öfgar heldur er stuðst við þennan "gullna meðalveg" ,sem sagt gera hlutina með skynsemi. Svo það sem gerði fyrirlesturinn enþá skemmtilegri að þá var okkur skellt í leikfimi á milli þess sem talað var, sem gerði það að verkum að maður tók betur eftir. Þetta var í alla staði frábært og mikil fagmenska í fyrirrúmi. Takk fyrir mig

Anna Ellen - skrifað 30. janúar 2008

"Bjargey er stórkostleg kona! Hún er dugleg, hugmyndarík og hlý manneskja og það er mikill heiður að þekkja hana :) "