Skemmtisigling: Austur-Karíbahaf og Flórída
Ft. Lauderdale, Charlotte Amalie - St Thomas, Philipsburg, St. Maarten og Nassau - Bahamas.
16. – 27. nóvember 2010
Fararstjóri:
Sigmundur M. Andrésson
Oasis of the Seas - Stærsta farþegaskip í heimi
Úrval Útsýn kynnir með stolti, Oasis of the Seas, stærsta farþegaskip í heimi sem sjósett var þann 29. október 2009 eftir að hafa verið í smíðum í sex ár. Skipafélagið Royal
Caribbean Cruiseline kynnir til leiks annað glæsilegt skip í Freedom
klassa, fljótandi 5 stjörnu hótel sem undirstrikar að skemmtisiglingar
eru ævintýri og upplifun sem seint gleymist.
Í þessari ferð verður siglt um Austur - Karíbahaf og komið við á hinum undirfögru eyjum St. Tomas, St. Martin og Bahamas. áður en haldið er aftur til Ft. Lauderdale. Karíbahafið er er
dásamlegur leikvöllur fyrir köfun og sund, sólböð og afslöppun,
verslunarferðir og golf. Við verðum umkringd drifhvítum ströndum,
blágrænu hafi og fegurstu eyjum heims.
Þetta glæsilega skip er búið nær öllu er hugurinn girnist, enda 360
metrar á lengd og með rými fyrir 6.300 farþega. Barir, veitingahús,
leiksýningar og skemmtanir eru hvarvetna í boði, ásamt ævintýralegu
sundlaugasvæði.
Flogið verður til Orlando og gist í fjórar næturt á Florida Mall Hotel áður en haldið verður að skipi.
Að morgni 27. nóvember verður komið í land í Ft. Lauderdale og þaðan verður ekið til Orlando og haldið þaða beint heim um kvöldið.
- Flug til og frá Orlando
- Gisting á hótel Florida Mall án morgunverðar í 4 nætur
- Skemmtisigling með fullu fæði og afþreyingu í 7 nætur
- Þjórfé um borð í skipinu
- Allar ferðir milli flugvalla, hótela og skips
- Skoðunarferðir á áfangastöðum skipsins
Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns.
Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka
ekki.
Ath: Verið miðast við gengi og flugvallarskatta 8.2.2010.
Meira um ferðina
Ferðatilhögun
Innifalið í verði ferðar
Fararstjóri
Um skipafélögin
Vefsíða Oasis of the Seas