Fararstjórar

Sigmundur M. Andrésson

Sigmundur M. Andrésson fararstjóri

Sigmundur M. Andrésson

Sigmundur er fæddur vestur í Dölum. Eftir nám við Verslunarskólann hóf hann störf hjá Búnaðarbanka Íslands og síðar hjá Verslunarbankanum. Starfaði um árabil hjá Seðlabankanum, lengst sem deildarstjóri aðalbókhalds. Hann lauk prófi atvinnuflugmanns og starfaði m.a. við flug með ferðamenn um Ísland og einnig sem flugkennari og svifflugkennari, en í þeirri íþrótt hefur hann verið Íslandsmeistari og sett fjölda meta.

Hann vann um tíma fyrir Samvinnuferðir-Landsýn, en snéri sér síðan að eigin atvinnurekstri sem forstjóri Max hf. Ferðalög hafa lengi heillað hann og hafa þau hjónin ferðast um allar álfur heimsins og eftir að hann seldi fyrirtæki sitt hefur hann stundað fararstjórn til fjarlægra staða, m.a. fyrir Ingólf Guðbrandsson, Prímu, Emblu og Úrval-Útsýn. Hann hefur m.a. farið fyrir hópum til Mið- og Suður-Ameríku, Suður-Afríku, Lesotho, Egyptalands, Indlands, Kína, Taílands, Malasíu, Balí, Singapúr og Víetnam ásamt siglingum um Karibíska hafið o.fl.

Sigmundur er kvæntur og á tvö börn.