Ferðatilhögun
| Brottför |
Dags. |
Kl. |
Koma |
Dags. |
Kl. |
| Keflavík |
16. nóvember
|
17:25 |
Orlando |
16.nóvember |
20:20 |
| Sigling |
20. nóvember
|
17:00 |
Ft.Lauderdale
|
27. nóvember |
07:00 |
| Orlando |
27. nóvember
|
18:00 |
Keflavík |
28. nóvember |
06:10 |
16. nóvember
Brottför frá Keflavík
*Sjá ferðalýsingu í töflu hér fyrir ofan.
Dvalið í fjórar nætur í Orlando á Florida Mall hótelinu.
Ath: morgunverður ekki innifalinn.
20. nóvember
Ekið verður frá Orlando til Ft.Lauderdale og tekur aksturinn um 4 klst. og
farið um borð í Oasis of the Seas, nýjasta og glæsilegasta
farkost Royal Caribbean Cruise.
Akkerum létt kl. 17:00.
21. og 22. nóvember
Á siglingu
Svifið á öldum Karíbahafsins og tilvalið að njóta allra þeirra dásemda, sem skipið hefur upp á bjóða.
23. nóvember
Eyjan St. Thomas er ein fallegast eyjan í Karíbahafinu. Ótrúleg náttufegurð og ógleymanlegar stendur. Njótið dvalarinnar á St. Thomas með skoðunarferð um eyjuna eða með því að njóta lífsins á ströndinni. Fyrir þá sem líkar að versla er hægt að gera mjög góð kaupa í einum af mörgum tollfrjálsu verslunum í Charlotte Amalie.
24. nóvember
Komið til Philippsburg, St. Martin að morgni 24. nóvember. Þessari hitabeltiseyju í norðausturhluta Karíbahafs var nokkurnvegin skipt jafnt á milli Frakka og Hollendinga árið 1648. Suðurhluti eyjunnar þar sem lagt er að bryggju tilheyrir hollenska hlutanum og er það sýnilegt í umhverfinu. Norðurhluti eyjunnar tilheyrir Frakklandi. St. Maarten er minnsta byggða eyja sem skiptist á milli landa. Á eyjunni búa rúmlega 74 þúsund manns.
25. nóvember
Á siglingu
Lífsins notið á stærsta skemmtiferðaskipi í heimi á meðan siglt er frá St. Maarten áleiðis til Bahama
26. nóvember
Komið í höfn í Nassau rétt eftir hádegi þann 26. nóvember. Bahamaeyjar liggja norðaustan og austan Srótu-Anitlleyja. Þar er íbúafjöldi um 270 þúsund manns. Höfuðborgin er Nassau. Á Bahamaeyjum er að finna margar fámennar baðstendur, góða aðstoðu til köfunar, urmul kóralla- og fiskitegunda. Lengi vel voru gestir eyjanna auðugt fólk en eftir seinni heimstyrjöld fór almenningur í Bandaríkjunum og Kanada að sækja þangað í auknu mæli og hófst þá mikil uppbygging fyrir ferðamenn á svæðinu. Loftslag er þar mjög milt og Mið-Evrópubúar líta margir á eyjarnar sem orlofsparadís.
27. nóvember
Komið í land í Ft. Lauderdale að morgni 27. nóvember. Ekið til Orlando. Flogið frá Orlando kl. 18:00. Lending á Íslandi þann 28. nóvember kl. 06:10.
Siglingaleið Oasis of the Seas
| Dags. |
Höfn |
Koma |
Brottför |
| 20. nóv. |
Ft. Lauderdale, Flórída |
|
17:00 |
| 21. nóv. |
Á siglingu |
|
|
| 22. nóv. |
Á siglingu |
|
|
| 23. nóv. |
Charlotte Amalie, St. Thomas |
07:00 |
18:00 |
| 24. nóv. |
Philipsburg. St. Martin |
07:00 |
17:00 |
| 25. nóv. |
Á siglingu
|
08:00 |
16:30 |
| 26. nóv. |
Nassau, Bahamas |
13:00
|
19:00
|
| 27. nóv. |
Ft. Lauderdale, Flórída |
07:00 |
|
- Flug til og frá Orlando
- Gisting á hótel Florida Mall án morgunverðar í 4 nætur
- Skemmtisigling með fullu fæði og afþreyingu í 7 nætur
- Þjórfé um borð í skipinu
- Allar ferðir milli flugvalla, hótela og skips
- Skoðunarferðir á áfangastöðum skipsins
Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns.
Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki.
Ath: Verið miðast við gengi og flugvallarskatta 8.2.2010.