Um Skipafélögin

Royal Caribbean Cruise Line

Úrval Útsýn er með einkasamning við Royal Caribbean Cruises, eitt stærsta skipafélagið, og hafa hundruð Íslendinga upplifað drauminn.

Royal Caribbean Cruise Line er með 20 glæsiskip í sínum flota og á hverju ári er nýju skipi hleypt af stokkunum. Meðal skipa í flota félagsins eru stærstu skemmtiferðaskip í heimi, Oasis of the Seas, Voyager of the Seas, Freedom of the Seas og Liberty of the Seas. Þjónusta og allur aðbúnaður er fyrsta flokks í skemmtiferðaskipunum sem sigla um öll heimsins höf, þar á meðal Karíbahafið, Miðjarðarhafið, S.-Ameríku og Asíu.

Lífið er ferðalag

Af hverju að einbeita sér að áfangastaðnum þegar hægt er að njóta ferðalagsins? Lífið er ferðalag en ekki áfangastaður!

Ef þú ert að leita að einhverju nýju og öðruvísi í fríinu skaltu kynna þér Royal Caribbean. Meðal þess sem þú getur gert um borð:

  • Farið á brimbretti
  • Klifið klifurvegg
  • Lært köfun
  • Fengið dýrindis nudd
  • Skoðað heiminn
  • Kynnst ógleymanlegu fólki

Þegar þú ferðast með Royal Caribbean ertu ekki bara að fara í frí - þú ert að leggja í ævintýri!

Royal Caribbean skipafélagið

www.royalcaribbean.com