Taílandsferðir

Hér er þitt stóra austurlenska ævintýri!


Einstaklingsferðir

Við bjóðum upp á einstaklingsferðir allt árið um kring til Bangok, Chiang Mai og Hua Hin.

meira


Bangkok

Bangkok, gamla næturdrottning Austurlanda. Englaborgin í austri. Með sitt vafasama orðspor, geggjun, andstæður og óendanlegan fjölbreytileika. Nokkuð skökk og skæld, sumstaðar myrk og krassandi, annars staðar fægð og fínpússuð.

meira


Hua Hin

Hua Hin er ljúfur og þægilegur bær sem býður uppá fjölbreytta þjónustu og afþreyingu. Hestaleigur á ströndinni, bátaleigur, skútusiglingar, fjölbreytt úrval veitingastaða og verslana. Margir bestu golfvellir Taílands eru í nágrenni Hua Hin, þ.m.t. elsti völlur landsins því auðvitað þurftum prinsar og prinsessur að hafa eitthvað fyrir stafni.

meira


Chiang Mai

Ljúf og menningarleg borg rík af minjum frá 11. og 12. öld. Þrátt fyrir að vera næststærsta borg Taílands, á eftir Bangkok , er fátt líkt með borgunum tveimur.

meira