Fararstjórar

Viktor Sveinsson

 

Viktor Sveinsson

Þegar Viktor snéri heim í Hveragerði eftir fyrstu heimsreisuna rúmlega tvítugur, dreymdi hann um að geta notað titilinn "ferðamaður" í símaskránni, sem þá var helsta uppflettiritið, því þetta var áður en internetið kom til sögunnar.

Þó hver vegur að heiman sé vegurinn heim er Viktor enn í heimsreisu. Árið 1987 fór hann með bakpokann upp eftir Nílarfljóti frá Kaíró til Súdan og hringinn í kringum Viktoríuvatn um Úganda, Rúanda, Búrúndi og Tansaníu. Asía var rakin frá vestri til austurs einsog var móðins á þeim tíma, án þeirra þæginda og öryggis sem þykir sjálfsagt í dag.

Asía hafði fest í hann drekaklónum og innan skamms var snúinn aftur til Taílands, Kína og Filippseyja. Á Woleaieyju í Míkrónesíu buðu eyjaskeggjar honum konu, bát og strákofa fyrir kynbætur í þeirra hverfandi þjóð sem taldi bara 500 manns. Hann hafnaði því, snéri heim til frama í auglýsingagerð og markaðsmálum en hugsar þó oft til þessarar afskekktu eyju og afkomu íbúanna.

Ferðamennskan tók á sig faglegri mynd þegar Viktor tók við Búðum á Snæfellsnesi og sat þar hótelbúi í áratug og fór helst ekki utan landsteina en kaus fremur sinn hnakk og einn fótfráan til fjallaferða á Fróni.

Árið 2004 endaði ferðalag um Víetnam og Taíland með búsetu í Bangkok. Síðan hefur hann haldið heimili í Hua Hin, Bangkok og á Balí og þrammað fjörur og fjöll um gjörvalla Suð-Austur Asíu.

Taíland er heimili hans þó hugur hans dvelji ekki minna við goðsagnir Angkor, framandleika Balí, seið Bútan eða kyrrð Luang Prabang.

Viktor rekur ferðaþjónustuna Óríental, sem er sérhæfð fyrir Íslendinga á ferð um Asíu, og hefur leitt ferðafólk um víðan völl asískra ævintýra.

Friðrik Erlingsson

Friðrik Erlingsson

Goðsagnir Angkor og forn menningarheimur Indókína var það sem fyrst laðaði Friðrik til Suð-Austur Asíu. Í fyrstu ferð sinni til Angkor gekk hann af sér skóna í daglegum rannsóknarferðum um rústirnar og á kvöldin var lesið úr kenningum og rannsóknum fræðimanna um þennan horfna heim. Sem áhugamaður um söguöld Íslands, fornsögurnar og þeim táknmyndum sem úr þeim má lesa fór hann að tengja á skemmtilegan hátt ýmist í þessum ólíku heimsinshornum; Ísland og Angkor. Balí og mystík hindúismann og sá framandi blær sem einkennir eyjuna fangaði hug hans er hann gekk hæðir Úbúd eða rýndi í galdrastafi á strönd Sanúr.

Friðrik hefur leitt asíska ferðalanga um Ísland á vegum North Rovers og í þessari einstöku áramótaferð mun hann leiða dagsferðir um söguslóðir Taílands auk þess að fylgja þeim sem kjósa á ævintýraslóðir Angkor og Kambódíu.

En þegar Friðrik er ekki á faraldsfæti um Ísland eða Asíu situr hann að skriftum. Eftir hann liggur fjöldi bóka og kvikmyndahandrita s.s. einsog Benjamín Dúfa sem gefin hefur verið út um víða veröld - þ.m.t. í Asíu.

Anchelee Sawasdee Baldursdóttir

Anchelee Sawasdee Baldursdóttir

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Angie ferðast víða og starfað við margt. Fædd í Taílandi en alin upp á Íslandi og þó blóðið sé taílenskt er hugurinn rammíslenskur.

2007 til 2008 starfaði hún á skrifstofu Óríental í Bangkok auk þess að ferðast um landið í leit sinni að taílensku rótunum og til að slípa móðurmálið. Klettaklifur á Krabi, tunglhátíðir á afskekktum eyjum, óstöðvandi stuð Bangkok og friðsæl fjöll norðursins kveiktu upp áhuga og aðdáun á sögu og fortíð gamla Síam og umhyggu fyrir framtíð stórkostlegrar þjóðar í hraðri uppbyggingu.

Ferðaþráin hefur dregið Angie áfram með bakpokann um Mið- og Suður-Ameríku og Bandaríkin. Vatnasport og útivist eiga hug hennar allan og gönguleiðir Hua Hin og kayakarnir á ströndinni hafa oft dregið hana út úr Bangkok.

Hlutverk Angie í væntanlegri áramótaferð Úrval Útsýn er leiðsögn um Bangkok þar sem hún mun t.d. veita kvenleg og praktísk ráð um verslun og afþreyingu. Í Hua Hin mun hún svo sérstaklega leiða útivistarferðir auk þess að vera til aðstoðar á hótelunum flestum stundum.