Centara World Bangkok og Marriott Hua Hin

CENTARA GRAND í WORLD CENTER 29.des - 01.jan.
Glæsilegt og vandað 5 stjörnu hótel sem býður uppá stórkostlegt útsýni yfir víðfema og gassalega borgina. Svöl hönnun einkennir yfirbragð herbergja og þjónusturýma og fjölmargir veitingastaðir eru í boði innan hótelsins. Þetta nýja og rismikla hótel er staðsett í hjarta Bangkok. Hvort sem tekið er mið af fjarlægð við verslunarmiðstöðvar, skemmtistaði, næturmarkaði, menningarlegar minjar eða hinn ljúfa Lumphini garð þá er Centara Grand á besta stað.

HUA HIN MARRIOTT RESORT AND SPA  01.jan - 10.jan

 

Klassískt og vandað hótel á besta stað í bænum og við breiða hvíta ströndina með útsýni suður að Apafjalli og yfir víðan Taílandsflóa. Þegar hótelið var opnað fyrir um aldafjórðungi var það nánast útí sveit og einungis eitt annað hótel af þessari stærð og standard hafði risið í Hua Hin. Í dag má segja að það sé í miðbænum. Þar sem það liggur á milli strandar og Petchakasem aðalgötunnar, er að myndast hinn nýji kjarni Hua Hin, í kringum fyrstu og einu stór-verslunarmiðstöð bæjarins þar sem fjölbreytta þjónustu er að finna. Anddyri, herbergi, sundlaugargarðurinn og allur aðbúnaður er fyrsta flokks og ekki spilla fyrir fjölbreytilegir veitingastaðir þ.m.t. einn besti steikarstaður Hua Hin.

 

 

 

 

Sjá á korti
HEIMILISFANG