Gott að vita – Taíland

Hagnýtar upplýsingar í stafrófsröð


Bankar :

Opnunartími frá 8:30 til 15:30 alla virka daga. Þess utan eru mjög víða lítil bankaútibú og gjaldeyrisskiptistöðvar opnar fram á kvöld og jafnvel allan sólarhringinn.


Drykkjarvatn.

Ekki er ráðlagt að drekka kranavatn í Taílandi – kaupið drykkjarvatn á flöskum.


Farsímar:

Símaklefar, kortasímar er víða að finna nálægt okkar gististöðum. Símanúmerið úr landi (til Íslands) er: 009-354 og svo númerið heima. Verðlag og tilboð símafyrirtækja eru síbreytileg en það er alltaf ódýrara að hringja með 009 í stað 001 útúr landinu. Munar stóru. Athugið að öll innlend símanúmer byrja á 0.


Flugið:

Flogið er til Bangkok í beinu leiguflugi, en millilent er einu sinni á hvorri leið til að taka eldsneyti. Áætlaður flugtími er er 14 ½ klukkustund með stoppi. Matur er innifalinn í þessu flugi.


Greiðslukort

Hægt er að taka reiðufé út á kort í hraðbönkum sem eru víða. Allar betri verslanir, hótel og veitingastaðir taka við þekktum kreditkortum.


Handfarangur:

Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur (pdf) .


Hraðbankar:

Eru víða, bæði í Bangkok og í Hua Hin.
Visa ATM locator
Mastercard ATM locator
Amex ATM locator


Landið:

Taíland er heimur út af fyrir sig, heimur unaðssemda og skemmtilegrar afþreyingar. Hátt í 66 milljónir manna búa í Taílandi, en landið er 514 þúsund ferkílómetrar að stærð. Langflestir íbúanna aðhyllast Búddisma. Tæplega helmingur landsmanna fæst við landbúnað og hátt í fjörutíu prósent vinna við þjónustu af ýmsu tagi. Í desember og janúar má búast við mildu veðri og hitastigið er um 25 til 30 gráður á Celsíus, en regntímanum lýkur í október.


Læknisþjónusta:

Góð læknaþjónusta er í boði bæði í Bangkok og Hua Hin. Fararstjórar hafa nákvæmari upplýsingar ef þörf er á.


Moskító

Moskítóflugan getur verið aðgangshörð. Berið á ykkur flugnafæluáburð og hyljið ykkur vel í ljósaskiptum ef þið eruð á flugnasvæði. Verjið sérstaklega ökkla, olnboga og leggi. Hafið bæði með ykkur góða vörn til að koma í veg fyrir bit og eins "After Bite" til að bera á bit.


Ónæmisvarnir:

Ekki er skylda að fara í sprautur þegar farið er til Taílands, en við mælum með að allir kynni sér málið á næstu heilsugæslustöð.


Peningar:

Gjaldmiðilinn í Taílandi er batt(thb), eitt batt skiptist upp í 100 satong.

Útgefin mynt:
Slegin: 1 satang, 25 satang(kopar), 1 batt, 2 bött, 5 bött og 10 bött(gyllt og silfrað).
Seðlar: 20 bött(grænt), 50 bött(blár), 100 bött(rauður), 500 bött(fjólurauður) og 1000 bött(brúnn).

Best er að skipta evrum, dollurum eða öðrum peningum í bött við komu til landsins. Þó er mælt með að geyma einhvern hluta þessara gjaldmiðla í öryggisskáp á hótelum.

Hótel bjóða gjaldeyrisskipti en gengið er aldrei gott hjá þeim. Víðast á ferðamannastöðum er hægt að skipta ferðaávísunum, en þess utan getur það verið erfitt. Gott ráð er að eiga alltaf nokkur hundruð bandaríkjadollara eða evrur í mismunandi verðmiklum seðlum. Kort geta brugðist, peningavélar finnast ekki þegar mest á reynir, óvænt útgjöld koma upp þegar síst skyldi o.sv.fr. Skoðaðu gengið hér á www.oanda.com.


Rafmagn

220 - 240 Volt.


Sjóböð

Á flestum baðströndum gilda ákveðnar öryggisreglur. Athugið að misjafnt er hvort einhver er á öryggisvakt á ströndinni.
Rauður fáni, bannað að fara í sjóinn, getur varðað sektum.
Gulur fáni, aðgát skal höfð við böð.
Grænn fáni, ládeyða, gott baðveður.


Tryggingar

Öllum er ráðlagt að huga að ferðatryggingum áður en lagt er af stað í ferðalag og athuga að allir fjölskyldumeðlimir séu vel tryggðir. Gott er að hafa meðferðis tryggingarskírteini.


Tímatal:

Taíland er 7 klst. á undan Íslandi. Dæmi; þegar klukkan er 9 að morgni á Íslandi er hún 16 í Taílandi.

Sami tími allt árið um kring.

Í Taílandi er nú árið 2552 og er það ártal notað meira en hið vestræna sem þó er víða notað í bland.

En það er ekki bara að hér sé ártalið annað, heldur skipta þeir sólarhringnum öðruvísi upp. Við þekkjum 24 klst og 2 x 12 klst sólarhringaskiptingu. En hér er hefðin að telja 4 x 6 klst. Öllu jafnan er þetta ekki að valda neinum misskilningi þar sem fólk er meðvitað um að nota ekki þessa hefð við útlendinga. En það gæti þó hent ykkur að vera boðuð á stefnumót kl. 1 sem gæti verið kl. 01:00, 07:00, 13:00 eða 19:00.


Tölvur og internet:

Auðvelt að komast í netsamband bæði á hótelum og netkaffihúsum.


Veðrið:

Yfirleitt er veðrið á Taílandi heitt og er meðalhiti um 28° - 32° allt árið. Stundum er hætta á síðdegis- og kvöldskúrum en þeir standa yfirleitt mjög stutt yfi, en regntímanum lýkur í September. Rétt er að fara gætilega í sólinni fyrstu dagana og bera á sig góða sólarvörn.


Vegalengdir:

Frá flugvelli í Bangkok til Hua Hin eru liðlega 220 km og tekur aksturinn um tvær og hálfa klukkustund.


Vegabréf og vegabréfsáritun:

Ferðamenn með íslenskt vegabréf þurfa ekki áritun ef dvölin er innan við 30 daga. Allir verða að hafa fullgild vegabréf með gildistíma í það minnsta 6 mánuði framyfir áætlaða heimkomu. Ef aðrir en íslenskir ríkisborgarar bóka ferðina þarf að kanna hvort þeir þurfi fyrirfram vegabréfsáritun sem hægt er að sækja um hjá Kjartani Borg ræðismanni Taílands á Íslandi.

Við komu til Taílands þarf að útfylla sérstakt eyðublað sem farþegum er afhent í flugvélinni. Við innritun í landið heftar landamæralögreglan þann hluta eyðublaðsins sem tilheyrir brottför inní vegabréfið. Óráðlegt er að fjarlægja þetta form áður en landið er yfirgefið.

Lögum samkvæmt eiga ferðamenn að bera á sér vegabréfið öllum stundum. Gott ráð er að hafa ljósrit af vegabréfinu með sér en geyma það sjálft í öryggishólfi á hótelinu.

Framangreindar upplýsingar geta breyst skyndilega og eru því með fullum fyrirvara um breytingar. Það er á ábyrgð ferðamanns, ekki Úrvals Útsýnar, að standa rétt og vel að vegabréfs-, áritunar- og leyfismálum.

Verðlag í Thailandi árið 2009

Verð er í krónum og eingöngu ætlað til viðmiðunar

Startgjald leigubíls í Bangkok 140 kr.
Meðal leigubílstúr í miðbæ Bangkok 250 kr.
Bæjarferð með túktúk í Hua Hin 400 kr.
Bæjarferð með Songteaw(opin smárúta) um Hua Hin 50 kr.
Bjór í búð 120 kr.
Bjór á bar 200 kr.
Mont Clair rauð/hvítvínsflaska 1.100 kr.
Ginflaska (innflutt) 1.900 kr.
Núðlur á opnum götuveitingastað 120 kr.
Taílenskur kjúklingaréttur á einföldum opnum veitingastað 180 kr.
Fersk ostra á opnum götuveitingastað 140 kr.
Big Mac Meal 400 kr.
Kaffibolli á Starbucks 200 kr.
Diesel gallabuxur – sjóræningjaútgáfa 2.200 kr.
Ray Ban sólgleraugu –sjóræningjaútgáfa 450 kr.
Klukkutíma Taí nudd 500–5000 kr.
Taminn buffaló (þarfasti þjónninn) 25.000 kr.
Sjóræningjaútgáfur CD/DVD 400 kr.
Kventaska/kvenskór/bolur 1.000 kr.
Hanastél á Vertigo í Bangkok 2.200 kr.
Hanastél á Cosmos í Bangkok 350 kr.

Þjórfé:

Þjónustugjöld eru yfirleitt innifalin á dýrari stöðum og kemur það þá fram á reikningi, en þjónustugjöld eru aldrei innifalin á einfaldari stöðum heimamann. En hefð er að gefið sé þjórfé t.d. á veitingastöðum og leigubílum og þjónustustúlkum sem þrífa hótelherbergi.

Þjónusta Úrvals-Útsýnar

Íslenskir fararstjórar taka á móti farþegum á flugvelli og eru þeim innan handar allan dvalartímann. Upplýsingar um viðtalstíma og nauðsynleg símanúmer er að finna í upplýsingamöppum á gististöðum.


Öryggi

Það er óhætt að segja að Taíland sé öruggt land, en að sjálfsögðu þarf að fara varlega. Tilefnislausar árásir, nauðganir og ofbeldisglæpir gagnvart ferðafólki eru afar fátíðar. Truflanir og óþægindi frá hendi ókunnugra s.s. róna og götulýðs eru algengari í miðbæ Reykjavíkur en í miðborg Bangkok .

Fylgið ávallt einföldum ráðum einsog t.d.

  • Að hunsa sjálfskipaða leiðbeinendur og ráðgjafa sem spretta víða upp á ferðamannastöðum.
  • Konur eiga aldrei að segjast vera einar á ferð. Ef svo lítur út skal því borið við að verið sé að bíða eftir eiginmanni eða karlkyns félaga.
  • Að bera ekki dýra skartgripi.
  • Að þiggja aldrei ódýrt far með Dúk Dúk.
  • Að geyma verðmæti í öryggishólfum hótela
  • Að vera ekki á ferð á fáförnum stöðum seint um kvöld.
  • Að forðast strætishunda.
  • Að þiggja ekki gylliboð nuddstofa og gógóbara sem ekki hafa sýnilega framhlið.
  • Varist að hafa peningaveski í rass- eða brjóstvösum. Hengið ekki handtöskur á stólbak eða leggið frá ykkur.
  • Takið ekki með ykkur verðmæti á ströndina og passið eigur ykkar alltaf vel. 

Áríðandi að muna:

 Hafðu farsíma þinn og nafnspjald hótelsins ávallt á þér, hvert sem þú ferð.

  • Einnig reiðufé (skiptimynt) og kreditkort.
  • Mundu að í Suðaustur Asíu er vinstri umferð og því getur umferðin verið hættuleg og ruglingsleg fyrir íslendinga.
  • Aldrei skal opna bílhurð út í umferðina. Stígið ávallt út úr leigubílum að gangstétt.
  • Notaðu öryggisskápinn á hótelherberginu fyrir vegabréfið og annað dýrmætt sem þú geymir á herberginu. 

Innflutnings og tollareglur:

Áfengi og tóbak. Hver lögráða aðili má flytja með sér 200 sígarettur alls (max 250 gr) og einn lítra af áfengi (sterku eða veiku).

Styttur og myndir af Búdda, eða brot af, er óheimilt að flytja úr landi án sérstaks leyfis frá “Fine Arts Department”.

Einnig er hverjum farþega heimilt að flytja með sér til Taílands eina vídeóvél, 5 filmur, 3 vídeókassettur og eitt rafmagnstæki. Þessar reglur eru alls ekki fylgt strangt eftir, en gilda þó.