HUA HIN
Margar ástæður eru fyrir því að Hua Hin er frábrugðinn öðrum strandbæjum Taílands. Fyrst mætti nefna að þetta er elsti og grónasti ferðamannastaður landsins sem byggðist upp á fyrrihluta síðustu aldar af betri borgurum Bangkok sem sóttu í fagra friðsæld og þægilegt loftslag Hua Hin sem á þeim tíma var líttþekkt þorp fiskimanna og ananasbænda. Staðurinn var eiginlega uppgötvaður af Naris prins sem byggði sér litla höll sem enn er til og nefnist Saen Samran. Bróðir hans, Vajiravudh (Rama VI)konungur fylgdi í kjölfarið og fljótlega hafði hirðin sett niður bungaló og hallir meðfram ströndinni. Mörg þessara húsa standa enn og eru notuð af fjölmennri konungsfjölskyldunni. Bhumibol, núverandi konungur Taíland, býr orðið alfarið í einni af strandhöllunum sem nefnist Klai Kang Won, sem útleggst “Áhyggjurnar óra fjarri” á íslensku.
Þrátt fyrir að ferðafólk sæki mikið til Hua Hin og ferðaþjónusta sé áberandi hefur Hua Hin haldið öllum einkennum þess að vera sannlega taílenskur staður. Þetta er enn ein ástæðan fyrir sérstæði bæjarins. Þessu má sjálfsagt þakka að uppbygging ferðaþjónustu og aðlögun samfélagsins hefur verið jöfn og stígandi í tæpa öld. Enginn kippir sér upp við ferðamenn og allstaðar er fólk velkomið. Bæjarlífið er rólegt og það þarf ekki að fara langt frá Petchakasem götunni, sem er umferðaræð staðarins, til að rekast á búpening á rápi, heyra hanagal og sjá fólk að veiðum í síkjum, vötnum eða sjónum.
Smokkfiskurinn þykir ljúffengari í Hua Hin en annarsstaðar í Taílandi, hvort heldur grillaður með hvítlauk eða karrílagaður að taílenskum sið. Risarækjur í tom-jam súpu, rauðflesk af götugrilli, ferskar ostrur, gufusoðin krabbakló eða heilsteiktur flatfiskur. Allt er þetta hvort öðru ljúffengara og sagt er að taílenski maturinn sé betri í Hua Hin en öðrum ferðamannastöðum vegna fjölda innlendra ferðamanna sem koma til Hua Hi. Taílendingar lifa fyrir mat, ræða mat öllum stundum og eru vart búnir að kyngja síðasta munnbita þegar þeir hafa lagt á ráðin með næstu máltíð.
Auðvitað finnast svo fjölmargir öndvegis vestrænir veitingastaðir. Sænskir, þýskir, amerískir og að sjálfsögðu ítalskir. Svo eitthvað sé nefnt.
Hua Hin er myndarlegur bær með eiginlegum bæjarkjarna auk dæmigerðar strandgötu þar sem veitingastaðir og barir, klæðskerar og nuddstofur raðast þétt saman. Sjávarréttarstaðirnir niður við hafnarsvæðið eru jafnt vinsælir af heimamönnum sem ferðafólki. Frá höfninni hlykkjast svo götur þar sem barir, næturklúbbar, götusalar, markaðir og veitingastaðir standa hver við annan.
Hua Hin er ljúfur og þægilegur bær sem býður uppá fjölbreytta þjónustu og afþreyingu. Hestaleigur á ströndinni, bátaleigur, skútusiglingar, fjölbreytt úrval veitingastaða og verslana.
Margir bestu golfvellir Taílands eru í nágrenni Hua Hin, þ.m.t. elsti völlur landsins því auðvitað þurftum prinsar og prinsessur að hafa eitthvað fyrir stafni.
Fyrir náttúruunnendur eru tveir spennandi þjóðgarðar skammt undan. *Kaeng Krachan* þjóðgarðurinn með fjölskrúðugt fuglalíf og *Khao Sam Roi Yot* þjóðgarðurinn sem státar t.d. af glæsilegum kalksteinsklettum.
Fararstjóri: Viktor Sveinsson