Skoðunarferðir

Athugið að ferðir geta fallið niður, þær breyst eða aðrar komið í staðinn, og að sumar ferðir geta verið háðar lágmarksþátttöku.


Bangkok Express næturferðin

Menning/Saga: XXX
Náttúra: X
Áreynsla: XX

Fyrsta kvöldið í Bangkok verður boðið upp á létta kúltúrkynningu á næturlífi borgarinnar.

Ferðin hefst í Lumphini garðinum við sólsetur innan um hundruð borgarbúa sem hreyfa sig sem einn maður í sameiginlegum aerobic-æfingum. Á slaginu 1800 stoppa allir þegar þjóðsöngurinn er leikinn.

Gengið er um Suan Lumphini garðinn frá Silomhorninu að Suan Lum Night Bazaar. Í Suan Lum eru 3700 sölubásar sem selja nánast allt milli himins og jarðar. Eftir drykki í bjórgarðinum undir taí-poppsjóvi er haldið á Sukhumvitgötuna. Þar er aragrúi skemmtistaða, veitingahúsa, gógóstaða, nuddstofa og götusala sem sjá til þess að aldrei verði dauð stund. Byrjað er að stoppa á Gallery veitingastaðnum þar sem snæddur er léttur kvöldverður í ævintýralegu umhverfi sem ber dám af byggingastíl Lanna í Norður Taílandi.

Eftir kvöldverð eru soi(hliðargötur) 7 og 3 áleiðis þrætt áleiðis í Litlu Líbanon, hverfi miðausturlandabúa, þar sem “ljótu” kallarnir eru í kuflum og portkonurnar eru þéttholda og þrifalegar. Vatnspípur, kebab, hulin andlit og arabískt letur mæta augum ferðalanga í þessu lítt þekkta hverfi. Meira af öllu því sem Bangkok er svo fræg fyrir. “Ljótir” kallar, sætar stelpur, limlestir betlarar, grillréttir í röðum, föngulegir kvenmenn, hávaði, læti, lykt og svo mikil ASÍA.

Svo þessi óvenjulegi leiðangur nái að þjóna sínum rannsóknartilgangi er nauðsynlegt að í hverjum hóp séu ekki fleiri en 15-20 aðilar og eins er fyrirvari á endurröðun og skipulagi svo allt og allir njóti sín sem best.

Verð:  Nánar auglýst þegr nær dregur

Innifalið: Ferðir, snakk og drykkur í Suan Lum, léttur kvöldverður og fararstjórn.
Dagar: 29. desember
Brottför: 19:00
Lengd: 4-5 klst.
Ath. Lágmarksþátttaka 20 manns.


Konungshöllin í Rattanakosin og Wat Po

Menning/Saga: XXXX
Náttúra: X
Áreynsla: X

Gamla konungshöllin er merkilegt fyrirbrigði. Að umfangi sem glæstar hallir Evrópu, en gerólík í stíl og formi. Þarna blandast saman heilögustu minjar og skrín taílensks búddisma og Chakri konungsættarinnar sem enn er við völd. Græna Emerald-búddalíkneskið – sem er heilagast allra Búddalíkneskja í Taílandi og krýningarhöll Chakrifjölskyldunnar er meðal þess sem þar er að sjá.

Nýlega var Ananta Samkhorn höllin opnuð almenningi og þar er til sýnis margir persónulegir munir konungsfjölskyldunnar og má þar finna djásn og dýrgripi því Bhumibol konungur Taílands er ríkasti þjóðhöfðingi heims. Frá höllinni verður farið í Po musterið sem er eitt elsta Búddamusteri borgarinnar og þar er einn virtasti skóli landsins í taílensku nuddi. Wat Po er þekkt fyrir tilkomumikið og einstaklega fallegt líkneski af Búdda, þar sem hann liggur og bíður dauða síns. Líkneskið er 45 metra langt og 15 metra hátt, hjúpað gulli og skreytt trúartáknum.

Hér verða gestir að sýna helgidómum gestgjafanna virðingu, enda er farið fram á að fólk klæði sig við hæfi. Stuttbuxur og bolir eiga ekki við á þessum stað.

Ef tími leyfir verður komið við á heillagripasölu sem er skammt frá höllinni. Taílendingar hafa ofurtrú á margskonar heillagripum sem þeir bera á sér til verndar og framgangs. Á þessum skrautlega markaði er hægt að kaupa forngripi og nýjustu útgáfur af máttugum töfratólum sem verja fólk fyrir byssukúlum, auka kynhvöt, tryggja frama og frægð eða bæta hjónabandið.

Verð: nánar auglýst þegr nær dregur

Innifalið: Akstur, aðgangseyrir og fararstjórn.
Dagar: 30. desember
Brottför: 09:00
Lengd: 4-5 klst.


Bátamarkaðinn Damnoen Saduak

Menning/Saga: XXX
Áreynsla: XX
Náttúra: XXX

Bátamarkaðurinn er sem pílagrímsstaður fyrir ferðamenn sem koma til Taílands og skyldi engan furða. Þrátt fyrir að mikill fjöldi ferðamanna leggi leið sína þangað heldur markaðurinn einkennum sínum og sjarma. Litríkur og iðandi af mannlífi kemur hann fyrir sjónir sem forn, óbreyttur og eins ekta og hann svo sannarlega er, því enn er þetta markaður heimamanna. Þetta er staður til að hafa myndavélina klára.

Markaðurinn hefst hvern morgun um 6 og undir hádegi, þegar heitasti tími dagsins færist yfir síkin dregur snarlea úr viðskiptum og mannaferðum.

Róið er á árabátum að gamla markaðnum og þaðan er svo siglt um síkin sem mynda víðáttumikið og flókið samgöngunet. Á leiðinni er víða komið við, meðal annars stoppað við nokkur forn og áhugaverð þorpsmusteri.

Verð: Nánar auglýst þegar nær dregur.
Innifalið: Akstur, aðgangur, hádegismatur og leiðsögn
Dagur: 4. janúar
Brottför: 07:00
Lengd: 9-10 klst.

Kanchanaburi - brúin yfir Kwai fljótið

Menning/Saga: XXX
Áreynsla: XX
Náttúra: XXX

Snemma morguns er ekið til Kanchanaburi þar sem hin fræga brú yfir ánna Kwai er. Byrjað verður að skoða JEATH safnið en JEATH stendur fyrir Japan-England-Australia-Thailand-Holland en þær þjóðir standa að þessu safni til minningar um þá stríðsfanga sem þjáðust og létu lífið í fangabúðum Japana í seinni heimsstyrjöldinni. Vonandi hafa farþegar séð hina frábæru mynd David Lean, Bridge on the River Kwai, með William Holden og Alec Guinness í aðalhlutverkum. Frægð Kanchanaburi byggist ekki síður á þessari mynd en þeim örlagaríku atburðum sem gerðust.

Í seinni heimstyrjöldinni gerðu taílensk stjórnvöld samkomulag við Japani sem veitti þeim mikil völd og margvíslega aðstöðu í landinu. Japanir settu upp herstöðvar og fangabúðir víða um Taíland. Þetta er tímabil sem Taílendingar eru ekki stoltir af því þarna töpuðu þeir í raun sjálfstæði sínu eftir að hafa með leikni komist undan yfirráðum vestrænna nýlenduherra sem náð höfðu öllum nágrannaríkjum undir sig.

Japanir fluttu stálbrú frá Jövu og neyddu stríðsfanga til að leggja járnbrautarteina sem tengja átti Taíland og Búrma auk þess að reisa þessa sögufrægu brú.

Auk safnsins verður ekið í lest frá brúnni að Heljareldsleið þar sem Dauðalestin svokallaða gekk.

13.000 vestrænir fangar létu lífið í fangabúðum Japana í Kanchanaburi og er þeim sýnd virðing með margvíslegum minningarvottum en það fer minna fyrir minningu þeirra 80.000 asísku nauðaverkamanna sem létu einnig lífið þarna.

Snæddur verður hádegisverður áður en haldið er í Wat Pa Luang Ta Bua klaustrið – eða Tígrisklaustrið. Sérstakt búddískt klaustur sem elur fjölda tígrisdýra og hefur á undanförnum árum hleypt ferðamönnum og almenningi inn á svæðið til að skoða þessi mikilfenglegu dýr.

Verð: Nánar auglýst þegar nær dregur.
Innifalið: Akstur, aðgangur, hádegismatur og leiðsögn
Dagur: 5. janúar
Brottför: 07:00
Lengd: 12 klst.
Ath. Lágmarksþátttaka 20 manns

Fílasýning og reiðtúr

Menning/Saga:X
Áreynsla: XX
Náttúra:XXX

Það er rétt um stundarfjórðungs akstur frá Hua Hin í fílagarðin þar sem þessar undursamlegu skepnur skemmta gestum með ótrúlegum uppátækum og listum auk þess að bera gesti á bakinu eftir skógarstígum.


Verð: Nánar auglýst þegr nær dregur.


Dagur: 9. janúar
Brottför: 12:00
Lengd: 6-7. klst.
Innifalið: Akstur, aðgangseyrir, skemmtun, fílareiðtúr og fararstjórn.
Ath. Lágmarksþátttaka 12 manns