Best Tenerife - Úrvalsfólk

Upplifun

Gott 4 stjörnu hótel (hét áður Tenerife Princess), frábærlega vel staðsett í hjarta Playa de las Americas þar sem örstutt er í verslanir og þjónustu . Nýtískuleg bygging sem stendur í fallegum gróðursælum sundlaugagarði. Gott hótel fyrir alla fjölskylduna.

Vistarverur

Á hótelinu eru 365 vel búin herbergi með öllum þægindum, þar sem eru tvö stök rúm, skrifborð, öryggishólf, sími, sjónvarp og minibar sem hægt er að fá í gestamóttöku gegn gjaldi. Á herbergjum er loftkæling, fullbúið baðherbergi með hárþurrku og svalir sem ýmist snúa inn í sundlaugargarðinn, með útsýni yfir Playa de las Americas eða upp til fjalla.

Aðstaða

Góð sólbaðsaðstaða er við hótelið í gróðurmiklum garðinum, bogalöguð sundlaug með hengibrú, fossi og barnalaug og gott leiksvæði fyrir börnin. Ókeypis sólbekkir eru fyrir gesti.

Afþreying

Á Best Tenerife er að finna bæði tennis- og skvassvöll. Internetaðstaða er á hótelinu og auk þess er öflug skemmtidagskrá í boði bæði á daginn og kvöldin svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Veitingastaðir

Aðalveitingastaður hótelsins er hlaðborðsstaður við sundlaugargarðinn, þar sem er borinn er fram morgun- og kvöldverður er þykir ljúffengur. Skemmtilegt grill, veitingahús og bar er að finna í og við sundlaugina þar sem hægt er að svala löngun í mat og drykk yfir daginn.

Fyrir börnin

Krakkaklúbbur fyrir yngstu kynslóðina og fjölbreytt skemmtidagskrá er í boði á daginn og kvöldin fyrir börn sem fullorðna.

Staðsetning

Best Tenerife er mjög vel staðsett í hjarta Playa de las Americas. Aðeins 300 m á ströndina (stígur frá hótelinu) fjöldi verslana, kaffihúsa, veitinga- og skemmtistaða er í næsta nágrenni. Fyrir þá sem vilja komast í golf er Golf las Americas golfvöllurinn aðeins 1 km fjarlægð.

Sjá á korti
Sjá heimasíðu
BYGGING

Endurnýjað árið (2003)
Fjöldi herbergja (365)
Fjöldi hæða (7)
Gestamóttaka (Já)
Lyftur (true)

AÐSTAÐA

Aðgengi fyrir fatlaða (Já)
Barnalaug (Já)
Hraðbanki á hóteli (Já)
Internet aðgangur (Í gestamóttöku)
Leiksvæði fyrir börn (Já)
Líkamsrækt (Nei)
Matvöruverslun (Í nágrenni)
Sauna (Já)
Skemmtidagskrá (Já)
Tennisvöllur (Já)
Veitingastaður (Já)
Bar (true)

VISTARVERUR

Gervihnattasjónvarp (Já)
Loftkæling (Já)
Minibar (Já)
Sími í herbergi (Já)
Öryggishólf (Já, á herbergi )

ÞRIF OFT Í VIKU

Handklæðaskipti (7x í viku)
Skipt á rúmum (4x í viku)
Þrif (7x í viku)

ANNAÐ

Fjarlægð frá strönd (300 m)

HEIMILISFANG


KORT