Roque Nublo
ALMENNT
Miðsvæðis á Ensku ströndinni við Avenida de Tirajana, við hlið Yumbo Centrum. Í byggingunni eru margir veitingastaðir og garðurinn þykir sérlega notalegur.
Vistarverur
Snyrtilegar, bjartar og einfaldar íbúðir. Í þeim er stofa, svefnherbergi, eldhúskrókur, baðherbergi og rúmgóðar flísalagðar svalir með garðhúsgögnum. Íbúðirnar rúma hámark 4 gesti (3 fullorðna og 1 barn). Endurnýjað að hluta árið 2003.
Okkar mat
Einfaldar, rúmgóðar íbúðir á góðum stað. Ein vinsælasta gisting Íslendinga á Kanarí, góð staðsetning á eftirsóttum stað.