New York 25.11 - 28.11.11 - UPPSELT

    • Um ferðina
    • Hótel
    • Bóka
    • Myndir
    New York 25.11 - 28.11.11 - UPPSELT

    Um ferðina:

    New York – haustið 2011

    Stórbrotin menningaborg, fjölbreyttar skoðunarferðir, leikhús, frábærir veitingastaðir og allt sem hugurinn girnist í verslun og þjónustu.

    Með beinu flugi til New York býður Úrval-Útsýn nú uppá á helgarferðir fyrir hópa og einstaklinga í haust og vetur.. Flogið er til Newark flugvallar í New Jersey en þaðan eru mjög góðar samgöngur til allra átta.

    Fjölbreyttar skoðunarferðir, frábærir veitingastaðir, leikhús og söngleikir, kaffihús, ölstofur og heimsfræg vöruhús. Allt þetta er að finna í New York og nágrenni. Þessi litríka borg er miðstöð viðskipta, stjórnmála og samskipta, tónlistar, tísku og menningar. New York er svo lifandi og skemmtileg að þú vildir óska þess að þurfa ekki að eyða tíma í svefn. Það verða allir að heimsækja New York. Þú kemur aftur og aftur.

    Gisting

    New York

    Úrval-Útsýn býður uppá skemmtilega nýjung í gistingu, NYC-JC Luxury Apartments á 70 Greene Street í Jersey City. Íbúðirnar eru staðsettar við árbakka Hudson steinsnar frá Manhattan með stórfenglegu útsýni yfir borgina. Val um studioíbúðir eða íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum.

    Samgöngur til og frá Manhattan eru einfaldar og fljótlegar. Íbúðirnar eru einstaklega smekklegar og nýtískulega innréttaðar. Þær eru með fullbúnu eldhúsi, góðu baðherbergi og stofu. Yfir sumartímann er útisundlaug og sólbaðsaðstaða opin fyrir gesti. Þá er þar fullbúin líkamsrækt. Fjöldi veitingahúsa er í nágrenninu og góð matvöruverslun handan við hornið.

    Við mælum með að farþegar panti akstur frá Newark flugvelli að íbúðagistingunni í gegnum söluskrifstofu okkar áður en haldið er út. Þá eru farþegar keyrðir upp að dyrum og fá fróðleik um nágrennið og íbúðirnar á leiðinni. Aksturinn tekur 15-20 mínútur. Við getum hiklaust mælt með þessum glæsilegu íbúðum. Tilvalinn kostur fyrir þá sem vilja gera vel við sig í gistingu á sanngjörnu verði.

    Verslun, samgöngur og fjarlægðirNew York

    Manhattan

    Frá íbúðagistingunni eru samgöngur yfir á Manhattan fljótlegar og þægilegar. Path lestarstöðin er staðsett í u.þ.b 3 mínútna göngufjarlægð frá íbúðabyggingunni en næsta stopp er World Trade Center þar sem tvíburaturnarnir stóðu. Þaðan er auðvelt að komast í neðanjarðarlestarkerfi New York borgar. Þaðan er einnig stutt að ganga yfir í Soho hverfið. Einnig ganga bátar á milli Jersey City og Manhattan en þeir leggja upp frá lítilli bryggju sem staðsett er nálægt íbúðabyggingunni. Bátarnir ganga eingöngu á virkum dögum en Path lestarkerfið gengur allan sólarhringinn, alla daga. Ferðin með lestinni yfir á Manhattan kostar $1,75.

    Verslun og þjónusta

    Það er einstaklega hagstætt að versla í New Jersey. Þar er enginn söluskattur á fatnaði og verðið almennt lægra en í New York. Í nágrenni íbúðanna á 70 Green Street er verslunarhúsið Newport Centre en þangað er u.þ.b 5 mínútna akstur eða þægilegur 20-25 mínútna gangur. Þá gengur sporvagn frá íbúðagistingunni alveg upp að dyrum verslunarhússins. Þar er að finna fjölda þekkta verslana eins og Macy´s JcPenney, Kohls, Sears og margar þekktar verslanir N-Ameríku. Þá er Jersey Garden Outlet verslunarhúsið staðsett í ca 15 mínútna akstursfjarlægð. Þar eru seld þekkt vörumerki með góðum afslætti.

    Önnur verslunarhús í New Jersey (30 - 45 mínútna aksturfjarlægð)

    Menlo Park Mall
    Menlo Park Mall er hefðbundin verslunarmiðstöð með öllum helstu vörumerkjum og stórverslunum eins og Macy´s, Nordstrom, H&M, Victoria´s Secret ásamt fjölda annarra verslana. Þar er hinn vinsæli veitingastaður The Cheesecake Factory og stórt kvikmyndahús. Það finna því allir eitthvað við sitt hæfi í þessari verslunarmiðstöð og auðveldlega hægt að eyða heilum degi þar. Opnunartími er frá kl. 10 til 21:30 nema á sunnudögum er opið til kl. 19.

    Í göngufæri frá Menlo Park er stórverslunin Target með fjölbreytt úrval á mjög hagstæðu verði.

    The Mall at Short Hills
    The Mall at Short Hills er með yfir 160 verslanir og margar sérverslanir sem ekki eru í öðrum
    verslunarmiðstöðvum eins og Saks Fifth Avenue, Neiman Marcus, Bloomingdales, Louis Vuitton, Cartier, Chanel, Dior og Gucci. Þessar verslanir eru almennt með vandaða vöru í dýrari kantinum. Þó eru hinar hefðbudnu verslanir einnig að finna hér á sama verði og í öðrum verslunarmiðstöðvum. Opnunartími er frá kl. 10 til 21 nema á laugardögum er opið til kl. 19 og til kl. 18 á sunnudögum.

    Woodbridge Center
    Woodbridge Center er ein af stærri verslunarhúsum New Jersey með meira en 190 verslanir þar
    með talið stórar verslanir eins og Macy´s, Sehrs, Lord & Taylor og JC Penney. Fjöldi veitingahúsa. Opnunartími frá kl. 10 til 21:30 nema á sunnudögum er opið til kl. 19.

    Fáðu tilboð í hópinn þinn til New York.

     

    Gistingar í þessari ferð:

    NYC-JC - 70 Greene Street

    NYC-JC á 70 Green Street eru glæsilegar íbúðir  sem standa í hárri íbúðabyggingu við Hudson ána í Jersey City.  Stórbrotið útsýni er yfir Manhattan og svæðið þar í kring.
    Stjörnugjöf: 4

    NYC-JC - 70 Greene Street

    NYC-JC á 70 Green Street eru glæsilegar íbúðir  sem standa í hárri íbúðabyggingu við Hudson ána í Jersey City.  Stórbrotið útsýni er yfir Manhattan og svæðið þar í kring.
    Stjörnugjöf: 4

    NYC-JC - 70 Greene Street

    NYC-JC á 70 Green Street eru glæsilegar íbúðir  sem standa í hárri íbúðabyggingu við Hudson ána í Jersey City.  Stórbrotið útsýni er yfir Manhattan og svæðið þar í kring.
    Stjörnugjöf: 4

    Skoðunarferðir í boði:

    Bókun:

    Vinsamlegast fylltu út þá liði sem eru hér fyrir neðan til að ganga frá bókuninni.

    1. 1Ferð

      Brottför, flug
      Flogið frá
      Lent í
      Heimkoma, flug
      Flogið frá
      Lent í
    2. 2Gisting

      NYC-JC - 70 Greene Street

      NYC-JC á 70 Green Street eru glæsilegar íbúðir  sem standa í hárri íbúðabyggingu við Hudson ána í Jersey City.  Stórbrotið útsýni er yfir Manhattan og svæðið þar í kring.
      Lesa meira
      Stjörnugjöf: 4
      Farþegaeinkunn:
      Veldu herbergistegund (verð inniheldur flug, hótel og skatta)
      NYC-JC. Íbúð með einu svefnherbergi. Verð pr. farþega: 0
      Heildarverð: 0

      NYC-JC - 70 Greene Street

      NYC-JC á 70 Green Street eru glæsilegar íbúðir  sem standa í hárri íbúðabyggingu við Hudson ána í Jersey City.  Stórbrotið útsýni er yfir Manhattan og svæðið þar í kring.
      Lesa meira
      Stjörnugjöf: 4
      Farþegaeinkunn:
      Veldu herbergistegund (verð inniheldur flug, hótel og skatta)
      NYC-JC. Studio Verð pr. farþega: 0
      Heildarverð: 0

      NYC-JC - 70 Greene Street

      NYC-JC á 70 Green Street eru glæsilegar íbúðir  sem standa í hárri íbúðabyggingu við Hudson ána í Jersey City.  Stórbrotið útsýni er yfir Manhattan og svæðið þar í kring.
      Lesa meira
      Stjörnugjöf: 4
      Farþegaeinkunn:
      Veldu herbergistegund (verð inniheldur flug, hótel og skatta)
      NYC-JC. Íbúð með tveimur svefnherbergjum. Verð pr. farþega: 0
      Heildarverð: 0
    3. 3Þjónusta

    4. 4Samantekt

      Heildarverð: kr. 0

    Myndasafn:

    Smelltu á myndina til að sjá stærri útgáfu

    nyheader_small.jpg
    WC-70-Greene.jpg
    WC-70-Greene2.jpg
    WC-70-Greene3.jpg
    WC-70-Greene4.jpg
    WC-70-Greene5.jpg
    WC-70-Greene6.jpg
    WC-70-Greene7.jpg
    WC-70-Greene8.jpg
    WC-70-Greene9.jpg
    WC-70-Greene10.jpg