Brighton

Brighton er oft kölluð Litla London, þar sem hún þykir bjóða uppá allt það sama og London, bara allt á mun lægra verði. Borgin er björt og hreinleg - ekki alltof stór og státar af langri ferðamannahefð.

Miðbærinn skiptist í þrjá hluta.

North Lanes, sem eru nokkrar mjög skemmtilegar göngugötur með fullt af litlum og skemmtilegum búðum, kaffihúsum og veitingastöðum. Flestar búðirnar eru litlar sérbúðir með t.d hönnunarhlutum, fötum, skóm og fl. Mikið af "second hand" búðum sem margar sérhæfa sig í ákveðnum tímabilum. Flóa- og antiquemarkaðir. Helstu veitingastaðirnir þar eru t.d Wagamamma sem er frekar ódýr en góð keðja með austurlenskum mat. YoSushi sem er skemmtilegur færibanda- sushistaður, Mange tout franskt, kaffihús og Bills sem er mjög skemmtilegt, frekar stórt kaffihús/búð.


Old Lanes, sem eru mjög litlar göngugötur - eins og hálfgert völundarhús. Þar finnur maður hönnunarbúðir, merkjabúðir eins og Burberry, YSL, Dior, Vivienne Westwood. High street búðir eins og All Saints, Karen Millen, French Connection og fl. Antique búðir, skartgripasalar, kaffihús og veitingastaðir. Helstu veitingastaðirnir eru Terra Terr sem þykir frábær grænmetisstaður, Days sem er austurlenskt mjög ódýrt buffet. Jamie Oliver sem er alveg frábær og alls ekki dýr. Donatello sem er mjög stór og mjög ódýr ítalskur staður, Riddle and Finns Champagne and Oyster Bar, mjög flottur og góður. Food for friends er heilsustaður. Havana sem er mjög "fínn" staður. Einnig eru stóru flottu hótelin eins og Grand og Hilton þarna við ströndina en það þykir mjög fínt og smart að fara þangað og fá sér Afternoon Tea.

Þriðji hlutinn er svo Chuchill Square og Western Road en þar er verslunarmiðstöðin og gata sem liggur meðfram henni. Í mollinu finnur maður merki eins og H&M, Bhs, Debenhams, Habitat, Disney, River Island, Warehouse, Lego, Miss Selfrige, Zara, WH Smith og fl. Á Western Road finnur maður svo himnaríki hinnar íslensku húsmóður sem er risastór Primark búð, stór ný H&M, Gap, Esprit, New look, Jamie Oliver búð og fl.

Áhugavert að skoða.

Það sem er skemmtilegt að skoða t.d. úr rútunni, er að keyra meðfram ströndinni og fara inn í hverfi eins og t.d Hanover en þar er mjög fallegur garður, skemmtilegar en mjög þröngar götur - þar er t.d skemmtilegur hverfis pöbb sem heitir Stetting Sun, en þar getur maður setið úti og séð yfir alla borgina og borðað ljómandi góðan breskan pöbbamat. Kemp Town er skemmtileg framlenging af bænum en það er kallað gay hverfi borgarinnar, fullt af kaffihúsum, pöbbum, skemmtistöðum og litlum búðum. Einnig er hægt að fara á Marina, en það er íbúða og smábátahverfi. Þar er stór matvörubúð og fullt af veitingastöðum og nokkrar litlar búðir. Þar er hægt að sitja úti á veitingastöðum og horfa yfir smábátahöfnina. Einnig er hægt að fara í bátaferðir meðfram ströndinni eða fara í sjóstangaferð. Þá er mjög skemmtilegur flóamarkaður (carboot sale) á sunnudagsmorgnum. Þar er líka casino, bowling og bíóhús. Fínir veitingastaðir, meðal veitingastaðir og svo mjög ódýrir eins og t.d Pizza Hut.

Sögufrægar eða áhugaverðar byggingar

Helstu byggingar eru the Pavillion sem er mjög falleg höll í miðbænum, en hana má skoða og einnig er kaffihús þar inni og skemmtileg túristabúð. Þar er líka fallegur garður fyrir framan höllina, sem hægt er að sitja í og fá sér kaffi á útikaffihúsi. Önnur skemmtileg bygging í miðbænum er sædýrasafnið en það er að ég held elsta sædýrasafn heims byggt árið 1872 í mjög fallegum Viktorískum stíl. Rétt hjá þessu er svo ströndin en þar er Brighton Pier sem er falleg bryggja með skemmtitækjum og mjög vinsælum Fish and Chips stað. Meðfram allri ströndinni er svo mikið af smærri og stærri veitingastöðum, listagalleríum, útimörkuðum og túristabúðum. Einnig er þekktur pöbb í Hove sem heitir Ginger Pig en þar er mjög vinsælt að fá sér Sunday roast og heilsukaffihús Heather Mills er á ströndinni í Hove en það þykir mjög smart.

Smáþorp, höll, herrasetur eða sögustaður í næsta nágrenni borgarinnar: Nálægt Brighton er þorp sem heitir Lewes en það er mjög fallegt og þekkt fyrir skemmtilegar antique búðir og kaffihús. Brighton búar fara líka mikið á sveitabæina í kring, en einn skemmtilegur heitir Middle Farm og þar er hægt að smakka heimagerðan Cider, fara á kaffihús, versla í litlu búð bóndans, skoða dýr og þar er líka leiksvæði fyrir börn. Sveitapöbbar eru einnig mjög vinsælir og þá sérstaklega á sunnudögum. Ginger Fox er mjög þekktur og vinsæll. Allir hafa mikið dálæti á pöbb - Royal Oak og hann er í litlum fallegum hobbitabæ, sem heitir Poynings. Annar skemmtilegur pöbb ekki langt frá Lewes er Anchor Inn en þar er hægt að fá góðan mat, fara í gönguferðir og leigja sér árabát og sigla niður á.



Í maí og desember eru listamenn í Brighton með svokölluð opin hús um helgar en þá getur fólk heimsótt listamennina, skoðað verkin þeirra og verslað við þá beint ;)