Búdapest
Búdapest er spennandi blanda af nútíma evrópskri heimsborg og arfi gamalla tíma, en um leið lifandi menningarlegt og sögulegt safn. Borgin er þægileg í að dvelja og hefur eins og aðrar heimsborgir upp á allt að bjóða. Byggingarlist í Búdapest er hreint stórkostleg og ber þar hæst þinghús landsins. Í borginni sjálfri og nánasta umhverfi hennar gætir áhrifa frá mörgum menningarsvæðum, en borgin er einmitt þekkt fyrir andstæður sem mætast í gömlu og nýju, tísku og hefðum, austri og vestri. Af bökkum Dónár er fagurt útsýni og Andrássy-gata og Hetjutorgið skarta einstökum glæsileika frá valdatímum konunga fyrri tíma. Nýir straumar frá Evrópu færa heimamenn og gesti í átt til breyttra tíma en Búdapest er óðum að nálgast vestræna menningu. Borgin er hreint einstök og er oft nefnd París austursins.
Handverk frá Ungverjalandi er vel þekkt um allan heim, sérstaklega þjóðbúningadúkkurnar, handmálaða postulínið, knipplingarnir, leirvaran og síðan en ekki síst eru það antikmunirnir í Falk Miksa-götunni, þar sem úrvalið er stórkostlegt.
Ungverjar eru þekktir gleðimenn, enda er söngur og hljóðfærasláttur samofið þjóðarsálinni. Nánast daglega eru haldnir tónleikar um alla borg en ef maður vill heldur blanda saman matarlist og tónlist eru til veitingastaðir sem bjóða upp á slíkt, en einn þeirra þekktari er Belcanto. Matarmenning Ungverja hefur orðið fyrir áhrifum víða að en það eru hátt í 400 veitingahús í borginni sem bjóða hefðbundinn ungverskan mat, til dæmis gúllassúpuna frægu, eða blöndu af réttum frá öllum heimshornum. Eftir góða sýningu í óperunni, er tilvalið að bregða sér á einhvern hinna skemmtilegu kaffi-diskóbara í borginni þar sem oftast er þétt setinn bekkurinn. Þegar kvöldhúmið leggst yfir er yndislegt að horfa yfir brýr borgarinnar og í fjarska heyrast tregablandin sígaunatónlist. Það er engin borg fremri Búdapest í því að krydda hversdagslífið með rómantík.
Vínmenning í Ungverjalandi er mjög hátt skrifuð. 22 vínhéruð bjóða úrvals léttvín, þurrt hvítvín frá nágrenni Búdapest og Balaton-vatnsins, kröftug rauðvín frá Villány héraði sem og Uxablóðið frá Eger. Þjóðarstoltið er nafnið "Tokaj" sem þekkt er um allan heim fyrir sætvín. Einnig verður að nefna "pálinka" sem er orðið verndað merki í ESB, og á við ávaxtasnafsa sem Ungverjar neyta gjarnan sem fordrykks.
Búdapest er fræg Spa-borg með 8 heilsulindir sem veita heitu vatni í glæsibyggingar baðhúsanna víðsvegar í borginni. Rómverjar lögðu grunninn fyrir 2000 árum, svo komu Tyrkir með tyrknesku "baðmoskunum" sínum. Í dag eru sundlaugarnar eins og Gellért, Széchenyi, Rudas, Király o.fl. lifandi samkomustaðir og uppspretta vellíðu á köldum vetrardögum.
Fáir vita, en Búdapest er ein þeirra örfáu höfuðborga heims, þar sem skíðasvæði er að finna innanbæjar. Í Búda-hæðunum eru stórskemmtilegir gönguleiðir, mikið um skóga og víða meiriháttar útsýni niður á borgina. Kláfar, barnalest og tannhjólalest geta svo flutt menn á milli staða, ef þreyta segir til sín. Þeir, sem vilja ekki ganga í hæðum, geta tekið sporin á Margaréta-eyju í miðri Dóná. Þar eru göngustígar, blómagarðar og útilistaverk, sund, rústir miðaldaklausturs o.fl. Einnig er hægt að setjast í kaffi á heilsubótahótelum sem þar eru.
Veður
Óperan í Búdapest
Ferðamálaráð Búdapest