Hagnýtar upplýsingar
Verslanir:
Aðal verslunargatan heitir Váci utca, Út frá henni eru einnig margar litlar hliðargötur þar sem hægt er að fá helstu merkjavörurnar. Á síðustu árum hafa risið fjölmargar verslunarmiðstöðvar, sú stærsta í allri Evrópu er West End City. Aðrar sem má nefna eru; Duna Plaza, Mammut - Moszkva tér. Gott er að versla innlendan fatnað í minni verslunum við "Stóra hring" eða "Litla Hring" eða Rákóczi út, sem er breiðgata í Pest frá Elísabetabrúnni í austurátt. Mikið úrval skóbúða er í Budapest og ef ekki fást skór við hæfi þá er hægt að láta sérsauma þá fyrir sig. Helstu ungversku merkjavörurnar og aðrar sem fást í Budapest eru; Váci 10, Kaláka design studio, Persona, Morgan, Gaudi, Green Mango, Onyx o, HM og .fl.
Fyrir þá sem vilja komast í antik þá er nóg af slíkum verslunum. Það er komið fullt af nýjum sér merkjavörum í Andrássy breiðgötuna, og einnig er búið að opna sérstaka "Fashion Street" með fjölda tískuverslana.
Flestar verslanir taka kreditkort en öruggara er að spyrjast fyrir um það áður.
Hvenær eru verslanir opnar
Opnunartími verslana er frjáls.
Á virkum dögum eru sumar að opna kl. 8.00 en aðrar kl 9.00 og margar kl. 10.00 á morgnana og eru opnar til 17:00, 18:00 eða lengur. Á laugardögum eru verslanir yfirleitt opnar til 14:00.
Stóru verslunarmiðstöðvarnar eins og West-End, Mammut og Duna Plaza eru opnar alla daga vikunnar til 18:00, 19:00 eða jafnvel 20:00. Einnig verslanirnar í Váci U.
Matvöruverslanir eru oft opnar allan sólarhringinn.
Tax free/Skattfrjáls verslun:
Eitthvað er um að verslanir bjóði upp á skattfrjálsa verslun en versla þarf fyrir lágmark HUF 50,000. Hægt er að fá 20% endurgreitt af vöruverði.
Hringt til Íslands:
00 354 + íslenska númerið.
Læknar:
Best er að leita aðstoðar á hótelum og hjá fararstjórum.
Matur:
Gúllas og paprika, er maturinn, sem heimurinn þekkti í ungverskri matarferðarlyst. Matarmenning Ungverja hefur einkennst af þungum, fituríkum og vel krydduðum máltíðum. Nú til dags er hollusta ofar í hugum fólks, betri veitingarstaðir hafa aðlagast "franskri" línu, en stærð skammtanna á flestum stöðum kemur enn á óvart.
Mynt:
Gjaldmiðill Ungverja er Forint (HUF):
Ath. að gengi hjá Exchange básum um borgina geta verið mjög mismunandi.
Skoðið gengið hér
Kredit og debetkort:
Hraðbankar eru víða og hægt að nota öll helstu kreditkort. Einnig er hægt að taka út
reiðufé í bönkum.
Tapað VISAKORT: Hringið til Íslands í síma 00 354 525-2000.
Tapað Mastercard: Hringið til Íslands í síma 00 354 5331400 (neyðarnúmer)
Bankar:
Opnunartími:
Mánudaga - fimmtudaga frá kl. 08:00 til 17:00.
Föstudaga frá kl. 08:00 til 15:00
Lokað um helgar.
Rafmagn: 220 volt.
Samgöngur: Leigubílar; startgjald 350 Huf, Km gjald 200 Huf.
Almennings-samgöngur eru góðar í Búdapest. Miðar eru keyptir fyrirfram, sem eru gataðir af starfsmönnum í strætó, lestum eða sporvagni. Hægt er að kaupa Budapest-kort sem gildir á flestum söfnum og samgöngutækjunum.
Tímamismunur:
Klukkan í Búdapest er einni klst. á undan Íslandi. Þegar klukkan er 10:00 á Íslandi er hún 11:00 í Búdapest.
Veitingastaðir:
Í Búdapest eru yfir 300 góðir veitingastaðir og veita fararstjórar upplýsingar um hvað er að finna nálægt hótelunum eða lengra fjær.
Verðlag:
Verð getur verið mismunandi en yfirleitt frekar ódýrt. Dýrari staðir vilja frekar borðapantanir, en það er líka auðvelt að fá borð ef verið er í kvöldgöngu í miðbænum. Fararstjórar og starfsmenn í gestamóttökum hótelanna aðstoða við borðapantanir. Stærri hópum er ráðlagt að panta áður en farið re frá Íslandi.
Það borgar sig fyrir ferðamenn sem ekki þekkja til í borginni að vera á varðbergi og biðja ávallt um mat/vínseðil og fara yfir reikninginn áður en greitt er. Góð regla er að láta greiðslukortið aldrei úr augsýn á veitingastöðum. Fara með þjóni, ef hann tekur kort eða vera með reiðufé til að greiða reikninginn.
Nokkrar ábendingar um veitingastaði:
1., Bel Canto
VI., Dalszínház u.
Við Óperuna, syngjandi þjónar, klassísk tónlist, fínn staður
2., Rivalda
I., Dísz tér,
Karmelita-klaustur. Leikhúsastemmning, frábært eldhús, meðaldýr staður.
3., Gundel
XIV., Állatkerti krt., við Dýragaðinn.
Einn af frægustum veitingastöðum landsins, fínn staður.
4., Búsuló Juhász
XI., Kelenhegy u.
Fínn staður á Gellert-hæð
5., 100 éves
V., Pesti B. u.
Elsti veitingarstaður í Búdapest "100 ára". Ungverskur staður við Elísabet-brúna
6., Anonymus
Gotneskur staður í kjallara Vajdahunyad kastalans.
Í göngufæri frá IBIS hótelinu við Hetjugtorg.
7., Kárpátia
V., Ferenciek Tere 7-8.
Klassískur ungverskur staður í hjarta borgarinnar
8., Sir Lancelot
VI., Podmaniczky u.
Miðaldastemmning í riddarastíl, veislur að hætti 8. aldar. Hér eru menn að ferðast langt aftur í tíma. Þjónar í miðaldaklæðningu bera á borðin rísa matarbakka, gestir borða með berum höndum. og stemmningin er eins og þekkist úr bíomyndum.
Tilvalið fyrir minni hópa. Alveg spés!
Þjórfé:
Það er venja að gefa þjórfé alls staðar, á veitingastöðum um 10%, í leigubíl rúnnar maður upp í næsta hundrað eða þúsund.
Öryggismál:
Í öllum stórborgum eins og Búdapest borgar sig að fara varlega. Farþegum er bent á að nota öryggishólf á hótelum og tilkynna strax ef greiðslukort tapast. Varast skal að vera með háar upphæðir á sér.