SKOÐUNARFERÐIR
Fimmtudagur 11. mars
Lent í Búdapest og ekið á hótelin. Eftirmiðdagur að eigin höfði.
Kl. 20.00 Kvöldferð um borgina í rútu og gangandi
Ekið verður um alla helstu breiðgötur og torg borgarinnar í flottri kvöldlýsingu, til að fá heildarmynd af þessari stórkostlegu borg. Á leiðinni verður frætt um alla helstu staði, byggingarsögu og menningu, bent á möguleika sem borgin býður uppá þessa daga. Ferðinni lýkur um kl. 22:30, en fólk getur farið út að bora hvort sem er fyrir eða eftir ferðina.
Verð: 25€
Innifalið: Akstur og fararstjórn, bolli heitt rauðvín í einkagarði fararstjórans.
Föstudagur 12. Mars - Borgarferð
Brottför kl 10:00. Áætlað er að ferðin taki um 4 klst. og hún er tilvalin til að kynnast borginni. Í skoðunarferðinni munum við sjá m.a Citadella, útsýnispallinn við frelsisstyttuna á Gellért fjalli, rölta um kastalahæðina Buda, Þinghúsið, Stefánskirkjuna, Hetjutorgið og ævintýrakastalann Vajdahunyad.
Verð: 30€
Innifalið: Akstur og fararstjórn
Laugardagur 13. Mars Sigling og kvöldverður:
Kl. 19.30 er lagt af stað frá hótelunum, en siglingin er frá 20:00 til 23:00. Siglt er í kringum Margareta-eyju, svo undir allar brýr miðborgarinnar að Tónlistahöllinni og tilbaka. Útsýnið er magnað þar sem allar helstu byggingnar miðborgarinnar eru flóðlýstar.
Maturinn er hlaðborð með fordrykk, köldum forréttum, heitum aðalréttum, ávexti, osta, tertur og kaffi, léttvin með matnum, Sígaunahljómsveit spilar um borð og sýndir eru þjóðdansar
Verð: 80 €
Innifalið: Sigling með kvöldverði, fordrykkur og létt vín með matnum. Skemmtiatriði og akstur til og frá hótelum.
Lágmarksþátttka í þessa verð er 40 manns.
Mánudagur 15.mars Dónárdalur - Heimför.
Þennan dag er allt lokað í Budapest vegna þjóðhátíðardags og við bendum á að nota daginn og fara í þessa skemmtilegu ferð.
KEkið norður til Esztergom þar sem stærsta Dómkirkja landsins er skoðuð, horft yfir Dóná til Slóvakíu. Síðan haldið til Visegrád, sem er gamla konungssetrið í Dónárdalnum frá 14. öld. Hádegisverður snæddur í veiðimannakofanum. Eftir það verður haldið til listamannaþorpsins Szentendre, sem er lifandi kaupstaður frá miðöldum. Rölt um gamlar götur, kirkjur og söfn, svo geftst tími til að skoða sig um en þar eru búðir og krár, smásöfn og kaffihús. Frá Szentendre er síðan haldið út á flugvöll.
Verð: 55 €
Innifalið: Akstur, fararstjórn og hádegisverður (3ja rétta villibráð).