Ferðatilhögun - Dresden
7 nátta

28. nóvember.

Flogið með flugi 5W131 til Berlínar kl. 08:55 - lent á Schönefeld flugvelli kl. 13:20.
Rúta bíður á flugvelli og svo er ekið rakleiðis til Dresden, 173 km. 1.40
kl.st.   Innskráning á Hótel Ibis *** í hjarta borgarinnar.

29. nóvember.

09:00 Morgunverðarhlaðborð.
10:00 Þriggja tíma skoðunarferð um Dresden undir leiðsögn Kristínar Jóhannsdóttur
13:00 Frjáls tími í bænum - veitingahús og markaðir á hverju strái.

30. nóvember.

09:00 Morgunverðarhlaðborð.
10:00 Dagsferð til fjallaþorpsins Seiffen, sem státar af einhverjum alskemmtilegasta jólamarkaði landins.
17:00 Komið til baka til Dresden

01. desember.

09:00 Morgunverðarhlaðborð.
10:00 Frjáls tími í Dresden
15:00 Haldið frá hóteli í hálfs dags ferð til bæjarins Meissen - komið í hina víðfrægu postulínsframleiðslu og ýmsar sögulegar menjar skoðaðar.
19:00 Kvoldverður á fallegum stað (ekki innifalinn í verði)
21:30 komið á Hótel Ibis.

02. desember.

09:00 Morgunverðarhlaðborð.
10:00 Brottskráning af hóteli og uppgjör reikninga.
10:30 Ekið til baka til Berlínar, þar sem gist verður næstu þrjár nætur.
12:00 Komið á hótel Holiday Inn Berlín-Mitte - innskránig á hótel.
14:00 Haldið í stutta gönguferð um nágrennið undir leiðsögn Kristínar Jóhannsdóttur
16:00 Frjáls tími í Berlín.

03. desember.

09:00 Morgunverðarhlaðborð.
10:00 Skoðunarferð með Kristínu um þessa stórkostlegu borg, þar sem hún sjálf bjó um langt árabil og var þá fréttaritari RUV
14:00 Frjáls tími í borginni - veitingahús, verslanir og markaðir á hverju strái.

04. desember.

09:00 Morgunverðarhlaðborð.
10:00 Frjáls dagur í Berlín.

05. desember.

09:00 Morgunverðarhlaðborð.
- Brottskráning af hóteli og uppgjör reikninga.
- Rúta mætir á hótelið til að flytja farþega á Schönefeld flugvöll í veg fyrir heimflug  5W132 kl. 14:20 - 16:50.