London
London er ekki bara höfuðborg Englands og ein af mest spennandi
borgum Evrópu heldur er hún líka einn af miðpunktum menningar,
viðskipta og tísku í heiminum.
Skemmtanalífið er mjög líflegt og fjölbreytt - fáir staðir í
veröldinni eru betri til að sækja leikhús eða söngleiki og alla daga er
hægt að velja úr fjölda tónleika að sækja, allt frá klassískri tónlist
til þess ferskasta í popp- og rokktónlist.
Þú getur keypt allt sem hugurinn girnist í London - hvort sem það er
hátískufatnaður í Harrod's, notuð föt á markaði eða eitthvað þar á
milli.
London iðar af lífi alla daga og allar nætur - hvort sem þú ætlar að
versla, fara í leikhús, á tónleika, út að borða, hitta vini eða njóta
lífsins þá er London rétti áfangastaðurinn.
Sjá einnig
Ferðamálaráð London
Veður í London
The London Guide
Um verslanir og markaði