Gott að vita um London
Fjarlægðir
Frá Gatwick flugvelli eru mjög góðar lestar og rútusamgöngur til miðborgar London.
Fljótlegasta leiðin er Gatwick Express lestin og kostar fargjaldið
báðar leiðir um 29 pund, lest fer á 15 mínútna fresti frá morgni til
kvölds og fer þá beint á Victoria lestarstöðina, ferðin tekur um 30
mínútur.
Nánari upplýsingar á vef Iceland Express og Gatwick Express.
Flugtími
Flug frá Íslandi til og frá London tekur um þrjár klukkustundir.
Gjaldmiðill
Gjaldmiðillinn er sterlingspund (GBP). Reiknaðu út gengið á Oanda.
Greiðslukort
Því sem næst alls staðar er hægt að greiða með kreditkortum. Hraðbankar eru víða um borgina.
Handfarangur
Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um
handfarangur.
Íþróttir
Fótbolti er mikið spilaður í Englandi og er hægt að taka lest til
flestallra áfangastaða þar sem stærstu leikirnir fara fram. Stærsti
fótboltaleikvangurinn í London er svo Wembley sem rúmar um 90.000 manns
sæti og er þar með næststærsti leikvangur heims talið í fjölda sæta og
sá stærsti ef miðað er við fjölda sæta undir skýli.
Landið
London er höfuðborg Englands og oft talað um hana sem höfuðborg Evrópu. Í borginni og nágrenni hennar búa um 7,5 miljónir manna.
Leigubílar
Það er auðvelt að ná í leigubíla í London. Það eru víða leigubílastöðvar í miðborginni og oftar en ekki eru bílar til staðar.
Rafmagn
220 - 240 volt.
Tímamismunur
Frá síðustu helgi í október gengur vetrartími í garð og þá er sami tími á Íslandi og í Englandi.
Á sumartíma, sem tekur gildi síðustu helgina í mars er England einni
klukkustund á undan okkur. Þetta þýðir að þegar klukkan er 12:00 á
Íslandi er hún 13:00 í Englandi.
Veitingastaðir
Fleiri þúsund kaffihús og veitingastaðir eru í borginni, í öllum verð- og gæðaflokkum.
Verslun
Margir af helstu tískuhönnuðum í heimi er í London og er hægt að fá
flestöll helstu tískumerkin í miðborg London. Helsta verslunargatan er
svo Oxford street og eru þar H&M, Debenhams ofl. Notting Hill er
svo skammt undan en þar er mjög skemmtilegur útimarkaður þar sem allir
ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Mikið er af verslunum og mörkuðum í London og er hér hægt að fá nánari upplýsingar ásamt kortum af þeim á vefnum Street Sensation
Vín
Hægt er að fá dýrindis vín á mörgum veitingastöðum í London eins og t.d. Gordon's Wine Bar, 47 Villiers street.
Leikhús í London
Stórskemmtilegt að fara í leikhús í London og úr mörgu að velja,
söngleikir, sakamálaleikrit, gamanleikrit, leikrit Shakespeare, óperur
o.m.fl. Við mælum með því að fara á Leicester Square þar sem hægt er að
fá miða á allar helstu sýningarnar.