Malmö
Malmö hefur gengið í gegnum miklar breytingar á skömmum tíma og
farið frá því að vera iðnaðarborg í að vera miðstöð menningar- og
mennta. Skömmu fyrir aldamótin var stofnaður þar háskóli og þegar
Eyrasundsbrúin opnaði fyrir tengingu til Danmerkur árið 2000 tók hún að
springa út af alvöru.
Malmö er í Svíþjóð, en hefur í gegnum tíðina tilheyrt Danmörku og vilja sumir meina að þar sé að finna það besta úr báðum heimum.
Malmö er mátulega stór - þar búa um 270 þúsund manns - einstaklega falleg borg, með torg og steinlagðar göngugötur í miðborginni. Miðjan er Stortorget, sem er um 5 mínútna gang frá aðaljárnbrautarstöðinni. Þaðan liggur 2 km göngugata að Trianglen,
en það er lítið torg og samnefnd verslunarmiðstöð. Um miðbik
göngugötunnar er Gustav Adolfstorg. Víðs vegar um borgina eru auk þess
litlir og skemmtilegir almenningsgarðar, en Malmö er gjarnan kölluð
Borg garðanna.
Allir þurfa að sjá hæstu byggingu Svíþjóðar, listaverkið Turning Torso, sem arkitektinn Santiago Calatrava hannaði.
Íbúarnir eru mjög vingjarnlegir og gestrisnir, þar er mikið af góðum
veitingastöðum, gott að versla og verðlag er heldur ódýrara en í
Danmörku.
Flogið verður til Kaupmannahafnar og ekið yfir hina mikilfenglegu
Eyrarsundsbrú yfir til Svíþjóðar, en aðeins er um 20 mínútna lestarferð
til Malmö frá Kastrup-flugvelli.
Það eru engar ýkjur að segja þetta svæði sé paradís golfarans. Á Skáni hefur þú um 70 golfvelli að velja úr sem eru ekki lengra en klukkustund í burtu. Ekkert annað svæði á Norðurlöndunum hefur eins marga golfvelli og eru sumir þeirra meðal þeirra bestu í Svíþjóð og Evrópu.
meira