Fararstjórar
Kristján Bragason
Kristján Bragason
Kristján Bragason er fæddur og uppalinn í Reykjavík og útskrifaðist úr
Menntaskólanum við Sund vorið 1989. Eftir menntaskóla lá leiðin í
stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og svo í framhaldsnám í
vinnumarkaðsfræðum í Warwick háskóla í Englandi. Eftir námið tóku við
störf fyrir verkalýðshreyfinguna og starfaði Kristján m.a. sem
framkvæmdastjóri hjá Starfsgreinasambandi Íslands.
Kristján hefur búið í Malmö í rúmlega fimm ár þar sem eiginkona hans
Margrét Leósdóttir hefur lagt stund á sérfræðinám í hjarta- og
lyflækningum. Féllu þau hjónin kylliflöt fyrir borginni, enda er mikil
gróska og uppbygging á svæðinu og hefur nálægðin við Kaupmannahöfn yfir
Eyrarsundsbrúna fengið Malmö til að blómstra á síðustu árum.
Fljótlega eftir að Kristján fluttist til Malmö ákvað hann að bæta
við sig framhaldsgráðu í viðskiptafræði við Viðskiptaháskólann í
Kaupmannahöfn. Eftir MBA námið réð hann sig til starfa hjá Landsbanka
Íslands þar sem hann hefur starfað sem sérfræðingur í norrænum
fjármálamörkuðum. Eftir mikil ferðalög síðustu fjögur árin ákvað
Kristján að nú væri komið nóg af flugferðum á milli Íslands og
Kaupmannahafnar. Hann ætlar því enn á ný að setjast á skólabekk og mun leggja stund á nám í lýðheilsufræðum við háskólann í Malmö frá og
með haustinu.
Ferðalög hafa lengi verið eitt af helstu áhugamálum Kristjáns og þá
ekki síst borgarferðir og hefur hann heimsótt þær ófár í gegnum tíðina.
Önnur áhugamál eru stjórnmál, samfélagsmál, menning, listir, golf og
langhlaup, en Kristján ætlar að hlaupa New York maraþonið í nóvember.