Hilton Malmö City
ALMENNT
Nútímalegt og gott 4ra stjörnu hótel í hjarta borgarinnar. Hilton City er við Trianglen torgið og samnefnda verslunarmiðstöð við efri enda göngugötunnar í miðborg Malmö. Hótelið er 20 hæðir og með stórum glerskála utanum A la Carte veitingastaðinn, barinn, gestamóttöku og setustofu. Lyftur eru utan á byggingunni og úsýni yfir borgina frá efstu hæðunum.
AÐSTAÐA
Veitingastaðurinn Lean Grill & Bistro ásamt hótel barnum eru í glerhúsinu á götuhæðinni og minni setustofa baka til. Á 3. hæð er "buieness center", ráðstefnusalir og hátíðarsalur, sem tekur 100 - 300 manns. Hægt að skipta í tvennt, setja inn dansgólf og bar og hagræða eftir stærð hópa. Smekklegur morgunverðarsalur er á 2. hæð. Stór og vel útbúinn tækjasalur er á eftstu hæð ásamt 2 sauna klefum, kvenna- og karla. Klakavélar eru á sumum hæðum.
VISTARVERUR
Tvær gerðir herbergja, "Standard " og "Executive" twin. "Executive "herbergin eru á 18. og 19. hæð. Öll herbergi eru rúmgóð eða um 25m2, fallega innréttuð með góðum rúmum og ýmist með parketi eða teppum. Herbergin eru með gervihnattasjónvarpI, útvarpi, síma, hárþurrku, smábar, straujárni og buxnapressu. Þráðlaust interner er aðgengilegt, gegn gjaldi.