Gott að vita um Malmö

Borgin

Malmö er þriðja stærsta borg Svíþjóðar og er í Suður-Svíþjóð. Efnahagslíf Malmö einkenndist lengi af þungaiðnaði og ekki síst skipasmíði og þar var Kockums lang stærsta skipasmíðastöðin.

Stór hópur Íslendinga fluttist búferlum til Malmö í atvinnuleit í lok sjöunda og byrjun áttunda áratugs síðustu alda og fóru margir þeirra að vinna hjá Kockums. Fjöldi þeirra settist síðan að í borginni og er fjölmenn nýlenda Íslendinga og athafnasamt Íslendingafélag í borginni. Til gamans má geta þess að Malmö var fyrrum kölluð Málmhaugar á íslensku.

Þar sem Malmö er syðsti bær í Svíþjóð er styttra þaðan til ítölsku borgarinnar Mílanó en nyrstu sænsku borgarinnar Kiruna.

Rétt eins og í Lundi eru göturnar í Malmö hellulagðar og gefur það skemmtilegan miðaldarbrag á bæinn. Á „Stortorget“ sem ber nafn með rentu, er fallegur gosbrunnur og við það stendur Rådhuset sem byrjað var að byggja 1546. Frá Stortoget liggur göngugatan og helsta verslunargata borgarinnar Södergatan.

Samgöngur

Flogið er til Kaupmannahafnar. Þegar komið er á Kastrup flugvöll og búið að sækja farangurinn, er gengi í átt að skiltii sem á stendur „Trains“. Þar eru keyptir miðar í lestina yfir Eyrarsund. Farið er niður á lestarpallinn, þar sem lestar ganga á milli frá Kastrup og Malmö á 20 mínútna fresti. Lestin fer um Eyararsundsbrúna, sem var vígð 1. júlí árið 2000 og er 8 kílómetra löng.

Fargjaldið kostar SEK 128 á mann báðar leiðir, eða um 2000 krónur. Ferðin tekur um 20 mínútur og er farið úr lestinni á aðaljárnbrautarstöðinni í Malmö.

Flugtími

Flug frá Íslandi tekur um 3 klukkustundir.

Gjaldmiðill

Gjaldmiðillinn er sænsk króna (SEK). Reiknaðu út gengið á Oanda.

Greiðslukort

Því sem næst alls staðar er hægt að greiða með kreditkortum. Hraðbankar eru víða um borgina.

Handfarangur

Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur.

Leigubílar

Það er auðvelt að ná í leigubíla í Malmö, en varast þarf óprúttna leigubílsstjóra sem taka fast SEK 250 fyrir skutl á hótel, meðan réttur taxti er 80 SEK.

Leigubílar, sem á að vera óhætt að taka eru: TAXI KURIR, TAXI SKANE og 979797.

Rafmagn

220 - 240 volt.

Tímamismunur

Frá síðustu helgi í október þegar vetrartími gengur í garð er tímamismunurinn 1 klst.

Á sumartíma, sem tekur gildi síðustu helgina í mars er Svíþjóð tveimur klukkustundum á undan okkur. Þetta þýðir að þegar klukkan er 12:00 á Íslandi er hún 14:00 í Svíþjóð.

Veitingastaðir

Mörg hundruð kaffihús og veitingastaðir eru í borginni í öllum verð- og gæðaflokkum.

Verslun

Úrval verslana er við göngugöturnar. Tískufatnaður, gler og postulín, listmunir, bækur, húsgögn, íþróttavörur , útilífsbúðir og margt margt fleira. Fjöldi verslunarmiðstöðva er í borginni og a.m.k. tvær í miðborginni (annað við hliðina á hótel Hilton city). Bendum sérstaklega á að fleiri en ein H&M verslun er í Malmö, þar af ein við göngugöturnar í miðbænum og önnur í verslunarhúsinu við hótel Hilton City.