Borgarferð - stutt kynnisferð um Malmö
Turning Torso
Kjörin leið til þess að kynnast borginni og fræðast um sögu og umbreytingu borgarinnar á síðustu árum. Leið okkar liggur um gamla og nýja borgarhluta Malmö og framhjá merkustu stöðum borgarinnar.
Við byrjum á að taka rútu út að Eyrarsundsbrúnni og skoðum þetta merka mannvirki sem lagði grunninn að þeirri miklu uppbyggingu sem hefur átt sér stað í Malmö á síðustu árum.
Því næst gerum við stuttan stans við Turning Torso, sem er ein hæsta íbúðarbygging Norður-Evrópu og hönnuð af spænska arkitektnum Santiago Calatravas. Í kringum turninn er skemmtilegt bryggjuhverfi og útivistarsvæði sem er vinsælt þegar vel viðrar í borginni. Við tökum svo rútuna upp í Slottsparken þar sem við kíkjum á Malmöhus kastala og Slottsmöllan (fallega hollenska myllu).
Við ljúkum svo ferðinni með stuttri göngu (1 km) í gegnum garðinn og gamla bæinn út að Lilla Torg. Þar er mikið úrval veitingastaða og kaffihúsa og tilvalið að setjast niður og fá sér hádegiverð eftir gönguna og hlaða batteríin.
Ferðin tekur um 3 klst. og er lagt af stað um kl. 10:00.
Beggja vegna Eyrarsunds
Menning og saga Danmerkur og Svíþjóðar
Lund
Ekið frá Malmö til Lundar sem er ein af elstu og fallegustu borgum Svíþjóðar. Aksturinn tekur um hálftíma. Lundur er vinsæll ferðamannastaður og háskólabær með fjölmargar litlar verslanir, kaffihús og veitingastaði. Í Lundi munum við rölta um gamla bæinn og skoða nokkrar áhugaverðar byggingar og söfn. Skoðum m.a. Dómkirkjuna, háskólabyggingar og minjasafnið Kulturen.
Hádegisverður snæddur í Lundi.
Eftir um tveggja tíma dvöl í Lundi ökum við til Helsingborgar og tökum ferjuna yfir til Danmerkur. Í Helsingør býðst fólki að skoða Kronborg kastala, sögusvið Hamlet, eða rölta um borgina. Eftir um klukkutíma dvöl er ekið að Louisiana safninu, sem er eitt skemmtilegasta listasafn í Evrópu.
Þeir sem vilja skoða safnið geta keypt aðgang á staðnum fyrir um 90 danskar krónur á mann. Einnig er lítill bæjarkjarni með kaffihúsi o.fl. skammt frá safninu og þar er upplagt að skoða sig um og setjast niður með kaffibolla eða hvað annað, sem fólk vill gera.
Frá Louisiana safninu er svo ekið meðfram Strandveginum til Kaupmannahafnar og út á flugvöllinn á Katrup.
Ferðin tekur um 7 klst. og er lagt af stað um 10:30.
Verð: 440 SEK (Um 7900 krónur)
Innifalið: Akstur, ferja milli Helsingborgar og Helsingör og íslensk fararstjórn.
Bókað og greitt hjá fararstjóra.