Malmö
Dagsetningar
- 17. – 20. september 2009
- 22. – 25. október 2009
- 26. – 29. nóvember 2009
Skoða nánar
Um Malmö
Malmö hefur gengið í gengum miklar breytingar á skömmum tíma og
farið frá því að vera iðnaðarborg í að vera miðstöð menningar- og
mennta. Skömmu fyrir aldamótin var stofnaður þar háskóli og þegar
Eyrasundsbrúin opnaði fyrir tengingu til Danmerkur árið 2000 tók hún að
springa út af alvöru.
Malmö er í Svíþjóð, en hefur í gegnum tíðina tilheyrt Damörku og vilja sumir meina að þar sé að finna það besta úr báðum heimum.
Malmö er mátulega stór - þar búa um 270 þúsund manns - og mjög
falleg, með torg og steinlagðar göngugötur í miðborginni. Miðjan er Stortorget, sem er um 5 mínútna gang frá aðaljárnbrautarstöðinni. Þaðan liggur 2 km göngugata að Trianglen,
en það er lítið torg og samnefnd verslunarmiðstöð. Um miðbik
göngugötunnar er Gustav Adolfstorg. Víðs vegar um borgina eru auk þess
litlir og skemmtilegir almenningsgarðar, en Malmö er gjarnan kölluð
Borg garðanna.
Ekki missa af hæstu byggingu Svíþjóðar, listaverkinu Turning Torso, sem arkitektinn Santiago Calatrava hannaði.
Íbúarnir eru mjög vingjarnlegir og gestrisnir, þar er mikið af góðum
veitingastöðum, gott að versla og verðlag er heldur ódýrara en í
Danmörku.
Flogið verður til Kaupmannahafnar og ekið yfir hina mikilfenglegu
Eyrasundsbrú yfir til Svíþjóðar, en aðeins er um 20 mínútna lestarferð
til Malmö frá Kastrup-flugvelli.
Meira um Malmö
Malmö
Malmö á vef ferðamálaráðs Svíþjóðar
Veitingastaðir
Verslanir
Út á lífið
Veður í Malmö
Turning Torso