New York – til skemmtunar

Manhattan á einum degi

Frábær ferð fyrir þá sem eru að heimsækja New York í fyrsta sinn. Ferðin hefst og endar á Times Square og er 5 ½ klst. Stoppað á mörgum áhugaverðum stöðum eins og Wall Street, Rockefeller Center, St. Patrick´s Cathedral, Central Park en einnig er ekið framjá Brooklyn brúnni og Empire State byggingunni. Þetta er bara lítið brot af því sem skoðað er í þessari ferð."Hop-on Hop-off" Fyrir þá sem vilja skoða borgina á eigin forsendum er tilvalið að kaupa "hop-on hop-off" miða en þannig er hægt að ferðast um borgina á eigin hraða. Yfir 50 staðir, New Yorkvíðsvegar um borgina sem hægt er að stoppa eða byrja. Hægt er að kaupa miða sem gildir í allt að 48 klst.Empire State Allir sem koma til New York verða að komast efst í Empire State bygginguna. Frábært útsýni yfir Manhattan og nágrenni frá öllum hliðum. Frábært útsýni yfir Central Park og öll úthverfi New York.Sex and the City Fetaðu í fótspor þeirra Carrie, Samanthu, Charlotte og Miröndu. Kíktu í búðirnar, veitingahúsin og skemmtistaðina sem þær vinkonur voru vanar að heimsækja. Gönguferð um marga áhugaverða og skemmtilega staði í Greenwich Village. Endaðu ferðina á einum Cosmopolitan.

Þyrluflug
Einstök upplifun. Ferð yfir Manhattan og nágrenni í þyrlu. Í þessari ferð sést hversu stórbrotin og fjölbreytt borgin er. Flogið m.a. yfir Frelsisstyttuna, rústir tvíburaturnanna, Brooklyn brúna , Central Park og Empire State bygginguna.

Ground Zero
Heimsókn í Ground Zero en ógleymanleg. Byggt hefur verið safn í kringum staðinn þar sem
Tvíburaturnarnir stóðu áður. Fjöldi mynda frá atburðinum.

Veitingahús
Fjöldi veitingahúsa er að finna í New York. Hérna er aðeins lítið sýnishorn af því sem í boði er:

Spice Market – Meatpacking District, 403 W 13th St at 9th Avenue
Þetta er staður fyrir alvöru sælkera. Mjög fjölbreyttur matseðill, frábær þjónusta og dásamlegur
matur.

New YorkFelidia – 243 East 58th Street
Þessi ítalski veitingastaður er vel staðursettur í miðborg Manhattan. Fyrsta flokks hráefni, ekta
ítalskur matur.

Smith & Wollensky – Third Avenue at 49th Street
Gott steikhús. Vel útilátinn matur og notalegt umhverfi.

Carnegie Deli – 854 7th Avenue at 55th Street,
Frábær samlokustaður þar sem þú færð mikið fyrir peninginn. Svo mikið að þú tekur afganginn með heim. Mundu eftir ostakökunni í eftirétt.

Chola – 232 E 58th Street,
Notalegur Indverskur matur í ódýrari kantinum. Hlaðborð í hádeginu á sanngjörnu verði.

The Magnolia Bakery - 3 staðsetningar: 401 Bleecker Street, 1240 Avenue of the Americas (Rockefeller Center) og 200 Columbus Avenue. Það þarf ekki mörg orð um þetta bakarí. Hér finnur þú girnilegustu kökur veraldar !

Bouley – 120 W Broadway
Flott franskt veitingahús. Notalegt andrúmsloft. Í dýrarikantinum.

French Roast Downtown – 78 W 11th Steet and 6th Avenue
Opið allan sólarhringinn. Alltaf hægt að komast í góðan mat hér.

Sarabeth´s Kitchen – 423 Amsterdam Avenue
Frábært að byrja daginn hjá Sarabeth. Ekta Amerískur morgunverður.

Artisanal Fromagerie & Bistro – 2 Park Avenue,
Skemmtilegt veitingahús sem shérhæfir sig í "brunch". Yfir 160 tegundir af víni og frábært úrval af
ostum.

Fleiri veitingastaðir.

Söngleikir, leikhús og tónleikar
Leikhúsmenningin blómstrar í New York. Leikrit, söngleikir og gamanleikir og hinar ýmsuuppákomur er að finna út um alla borg. Einnig eru heimsfrægir söngvarar eða hljómsveitir tíðir gestir i borginni. Það er að nógu að taka fyrir forvitinn ferðalang.

Flettu upp söngleikjum, leikritum og tónleikum í New York.