Golfskóli ÚÚ

Golfskóli Úrval Útsýn er jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna.

Husa/Alicante Golf

Haust 2012 er 4 golfskólaferðir í boði.

20.10 - 27.10, 7 daga ferð, 6 daga skóli.
20.10 - 30.10, 10 daga ferð, 8 daga skóli
30.10 - 06.11, 7 daga ferð, 6 daga skóli
30.10 - 06.11, 7 daga ferð, 3 daga skóli

Kennt er frá kl. 09.00 til hádegis á æfingasvæðinu. Eftir hádegi leika þátttakendur golf (frjálst val).
Hámarksfjöldi nemenda á kennara eru 7 manns.

Ferðirnar eru þannig skipulagðar að í almennu ferðunum er kennt fyrstu 6 dagana. Í lengri ferðinni er kennt fyrstu 4 dagana svo kemur frídagur og svo kennt næstu 4 daga. Styttri ferðin er hugsuð fyrir þá sem eru komnir af stað í íþróttinni og vilja laga eða skerpa á leiknum. Kennt verður fyrstu 3 dagana og svo sameinast nemendur öðrum almennum farþegum í golfinu.

Í skólanum eru kennd undirstöðuatriði golfsveiflu, vipps og pútts og jafnframt er farið yfir ýmsa þætti er tengjast golfleiknum almennt s.s. leikskipulag, siða- og umgengnisreglur, leikhraða og forgjafarkerfið.

Hægt er að sjá nánar um gistinguna með því að velja upplýsingar um almennu ferðirnar hér á golfsíðunni.
Innifalið er flug með flugvallarsköttum og flutningi á golfsetti (sjá reglur um farangur). Akstur milli hótels og flugvallar. Golfskóli í 3-8 daga og golf eftir hádegi með golfbíl á Husa. Íslensk fararstjórn.
Á Husa er morgun og kvöldmatur, sjá nánar í verðlistanum.

Við mælum með að þátttakendur komi með eigin kylfur og bendum á reglur um klæðnað og skóbúnað.

Kennarar skólans eru Júlíus Hallgrímsson, Þorsteinn Hallgrímsson PGA leiðbeinandi  og Ingibergur Jóhannsson PGA kennari.

Þorsteinn Hallgrímsson

Ingibergur Jóhannsson

Júlíus Hallgrímsson


Alicante

HUSA/Hesperia GOLF OG SPA ****

Það er samdóma álit þeirra sem til þekkja að Alicante Golf er og hefur verið einn best viðhaldni völlurinn á öllu svæðinu. Dagskipun eiganda til starfsmanna er einfaldlega að aðeins það besta sé nógu gott. Nýlokið er endurgerð allra flata á vellinum og er óhætt að segja að hreint stórkostlega hafi tekist til.