Golfskóli ÚÚ
Golfskóli Úrval Útsýn er jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna.
28. apríl. - 5.maí Husa/Alicante Golf
Kennt er í 6 daga, frá kl. 09.00 til hádegis á æfingasvæðinu. Eftir hádegi leika þátttakendur golf undir eftirliti og með aðstoð kennara (frjálst val).
Hámarksfjöldi nemenda á kennara eru 7 manns.
Í skólanum eru kennd undirstöðuatriði golfsveiflu, vipps og pútts og jafnframt er farið yfir ýmsa þætti er tengjast golfleiknum almennt s.s. leikskipulag, siða- og umgengnisreglur, leikhraða og forgjafarkerfið.
Hægt er að sjá nánar um gistinguna með því að velja upplýsingar um almennu ferðirnar hér á golfsíðunni.
Innifalið er flug með flugvallarsköttum og flutningi á golfsetti (sjá reglur um farangur). Akstur milli hótels og flugvallar. Golfskóli í 6 daga og golf eftir hádegi í 7 daga með golfbíl á Husa. Íslensk fararstjórn.
Á Husa er morgun og kvöldmatur, sjá nánar í verðlistanum.
Við mælum með að þátttakendur komi með eigin kylfur og bendum á reglur um klæðnað og skóbúnað.
Kennarar skólans eru Júlíus Hallgrímsson, Þorsteinn Hallgrímsson PGA leiðbeinandi og Ingibergur Jóhannsson PGA kennaranemi.
Þorsteinn Hallgrímsson
Ingibergur Jóhannsson
Júlíus Hallgrímsson
Alicante
Það er samdóma álit þeirra sem til þekkja að Alicante Golf er og hefur verið einn best viðhaldni völlurinn á öllu svæðinu. Dagskipun eiganda til starfsmanna er einfaldlega að aðeins það besta sé nógu gott. Nýlokið er endurgerð allra flata á vellinum og er óhætt að segja að hreint stórkostlega hafi tekist til.