Hesperia - Alicante Golf and Spa Hotel
Hótelið stendur við glæsilegan 18 holu golfvöll sem er hannaður af Severiano Ballesteros. Við hliðina á golfvellinum og hótelinu er kjarni þar sem finna má skemmitlega spánska matsölustaði þar á meðal frábæran tabas stað. Þar er einnig að finna bari, m.a. einn hefbundinn írskan. Auk þess eru þar nokkrar verslanir og þjónusta. Frá hótelinu er um 10 mínútna akstur til miðborgar Alicante þar sem er að finna fjörugt næturlíf og spennandi og fjölbreytta flóru veitingastaða. Það er um 10 mínútna gangur frá hótelinu á fallega strönd. Á leiðinni á ströndina eru skemmtilegar ekta spánskar verslanir og veitingahús. Í kring um Alicante er fjöldinn allur af spennandi verslunum sem vert er að kíkja í fyrir þá sem vilja gera góð kaup m.a. Nike factory outlet. Í Alicante búa 300.000 manns. Borgin er full af iðandi mannlífi og kemur alltaf skemmtilega á óvart, enda er stundum sagt að Alicante sé eitt best geymda leyndarmál Spánar.