Hotel Husa
Staðurinn sem kylfingar fara á aftur og aftur
Husa hótelið stendur í útjaðri Alicante borgar við hinn frábæra golfvöll Alicante golf sem er hannaður af stórkylfingnum Severiano Ballesteros.
Allt til alls
Það er ekki ofsögum sagt að farþegar okkar hafi verið ánægðir með Husa. Hér fer allt saman til að gera góð ferð. Frábært hótel staðsett á golfvellinum. Aðeins 20 mín frá flugvellinum og fjöldi veitingastaða og matvöruverslana í göngufæri frá hótelinu. Í 10 mín. akstursfjarlægð er að finna allar helstu verslanir og miðbæ Alicante með smábátahöfnina, veitingastaðina og gamla bæinn sem enginn ætti að láta hjá líða að skoða.
Eftir golfið
Er upplagt að nýta sér aðstöðu hótelsins. Fá sér snæðing á barsvölunum með útsýni yfir 18 flötina, leggjast út í sólbað í sundlaugargarðinn eða skella sér í nudd í heilsulind hótelsins. Einnig má rölta niður á fallega strönd sem er aðeins í 10-15 mín göngufæri. SPA hótelsins er innifalið í verði ferða, en greiða þarf fyrir nudd og dekur meðferðir.
Alicante Golf
Það er samdóma álit þeirra sem til þekkja að Alicante Golf er og hefur verið einn best viðhaldni völlurinn á öllu svæðinu. Dagskipun eiganda til starfsmanna er einfaldlega að aðeins það besta sé nógu gott. Haustið 2008 lauk endurgerð allra flata á vellinum og er óhætt að segja að hreint stórkostlega hafi tekist til. Aðstaða til æfinga er með þeim betri sem finnast. Púttflöt, vipp aðstaða, glompur og val um að slá af grasi eða mottum á æfingasvæðinu. Golfbílar eru innifaldir í verði ferða.
Meira Golf
Nú býðst farþegum okkar að leika umfram golf samdægurs fyrir aðeins 10 evrur per mann, innifalið golfbíll. Athugið þó að um þetta gilda þær reglur að ekki er hægt að panta rástíma fyrir umframgolf fyrirfram.
Frábær valkostur
Farþegar okkar hafa verið á einu máli um að Husa og Alicante Golf hafi flest allt til að fullkomna golfferðina enda fara þeir þangað aftur og aftur.
Innifalið
- Flug með sköttum og flutningur á golfsetti
- Morgun- og kvöldmatur
- Golfbíll
Sjá nánar