La Finca
Í aðeins 50 km. fjarlægð frá flugvellinum í Alicante er að finna splunkunýtt 5 stjörnu lúxushótel staðsett við einn vinsælasta golfvöllinn í Murcia/Alicante svæðinu. Hér er ekkert til sparað til að láta gestum líða sem best í fríinu. Nýtískuleg og björt hönnun hótelsins og nálægðin við golfvöllinn gera La Finca að sannkölluðum draumastað kylfingsins. Hótelið er með 117 herbergi. Öll búin öllum helstu þægindum nútímans. Á hótelinu er fullkomin heilsulind þar sem boðið er upp á nudd og fegrunarmeðferðir. Eigendur La Finca eiga jafnframt Las Ramblas og Villa Martin golfvellina sem farþegar okkar fá að spreyta sig á samhliða La Finca.