Rosen Shingle Creek
Frábær viðbót fyrir íslenska kylfinga.
Hótelið er 4 stjörnu sannkölluð lúxusgisting staðsett við Universal Blvd. Innréttað í spænska endurreisnarstílnum með stór og vel innréttuð herbergi.
Aðeins er um 10 mín akstur í miðbæ Orlando og allir helstu skemmtigarðarnir eru í næsta nágrenni.
Við hótelið er frábær 18 holu golfvöllur sem farþegar okkar leika. Innifalið er golfbíll og æfingaboltar á æfingasvæðinu.
Golf á eigin vegum í okkar ferðum
Orlando þekkja margir íslenskir kylfingar enda gnægð góðra golfvalla á svæðinu. Nú er tækifærið á að bóka flug og gistingu í tilbúnum pakka og bæta svo við bílaleigubíl og golfi eftir eigin hentugleikum. Hægt er að leika ágætis velli fyrir innan við 20 dollara á mann. Hér má sjá nokkur verðdæmi.
Vinsamlega kynnið ykkur reglur fyrir flug til Bandaríkjanna hér.