Roda header

Roda Golf!

Frábær nýjung í boði fyrir golffarþega Úrval Útsýnar.

Roda Golf er einn af nýju völlunum á Murcia svæðinu suður af Alicante á Spáni. Hannaður af Dave Thomas sem hefur hannað fjöldann allann af frábærum golfvöllum.

Roda völlurinn er hannaður þannig að allir kylfingar óháð getu eigi að njóta þess að leika hann. Átján holur par 72 með stórum flötum með hæfilega miklu landslagi. Þremur stórum vötnum sem hafa reyndar ekki mikil áhrif á leikinn. Af hvítum teigum er hann 6.177m, af gulum 5.819m. og af rauðum 5.244m. Klúbbhúsið er fyrsta flokks í alla staði með þráðlausri gjaldfrírri internettengingu og verðlauna veitingastað.

Gist er í splunkunýjum íbúðum við golfvöllinn. Íbúðirnar eru búnar öllum helstu þægindum utan þess að það eru ekki hárþurkur, gott fyrir konurnar að hafa í huga. Íbúðirnar eru í 3-10 mín göngufjarlægð frá klúbbhúsinu þar sem morgun og kvöldmatur er framreiddur. Ekki er um hlaðborð að ræða heldur sérvalinn matseðil. Fararstjóri í ferðunum á Roda hefur á að skipa 8 farþega minivan til að aka fólki á milli íbúða og klúbbhúss ef einhverjir vilja.

Roda Golf er tæplega 100 km. Suður af flugvellinum í Alicante. Rétt um 60 mín akstur. Í allra næsta nágrenni eru bæirnir Los Narejos (4 mín), Los Alcázares (5 mín) og San Javier (10 mín) þar sem er að finna veitingastaði og verslanir allt eftir þörfum hvers og eins. Ströndin í Los Narejos er aðeins í 5 mín. aksturs fjarlægð.

Rástímar haust 2011 eru flesta daga að byrja milli átta og níu á morgnana þannig að það gefst ágætur tími til að leika meira golf samdægurs fyrir þá sem það vilja.

Innifalið

  • Flug með sköttum og flutningur á golfsetti
  • Akstur milli flugvallar og hótels
  • Morgun- og kvöldmatur
  • Ótakmarkað golf og golfkerrur
  • 100 boltar á æfingasvæðinu daglega
  • Íslensk fararstjórn

Golfbíll kostar 20 evrur, daggjald.

Tenglar:

http://tour360.rodagolf.com/index_en.htm
www.rodagolfcourse.com
http://www.urvalutsyn.is/Golf/Roda/Myndir/
http://www.urvalutsyn.is/Media/PDF/roda_course_description.pdf
http://www.urvalutsyn.is/Media/PDF/roda_score_cards.pdf