Golf á Tenerife við frábærar aðstæður!
Úrval Útsýn býður nú upp á ferð fyrir kylfinga til Tenerife.
Eins og í fyrri ferðunum bjóðum við gistingu á Hotel Gala 4 stjörnu og íbúðahótelinu Tropical Playa 3 stjörnu. Ef það eru óskir um aðra gistingu þá gengur það þannig fyrir sig að viðkomandi bókar almenna ferð (án golfs) og hefur svo samband og bætir við golfpakkanum, kr. 40.000. per mann.
Innifalið í ferðinni eru 5 golfhringir. 3 á Los Lagos og 2 á Las Americas.
Los Lagos er frábær 9 holu völlur, hluti af Costa Adeje vellinum. Þrátt fyrir að vera 9 holu völlur þá hafa okkar farþegar verið sammála um að hann sé virkilega góður kostur. Skemtilegt landslag og góð umhirða gera hann að frábærum valkosti. Los Lagos er við Adeje ströndina í um 10 mín. akstri frá Gala og Tropical Playa.
Las Americas er mörgum íslenskum kylfingum vel kunnugur enda verið einn vinsælasti golfvöllurinn á eynni.
Völlurinn er staðsettur við Las Americas ströndina og því örstutt frá, Hotel Gala og Tropical Playa, sem kemur sér einstaklega vel þar sem farþegar sjá sjálfir um daglegar ferðir milli gististaðar og golfvallar.
Las Americas golfvöllurinn er 18 holu með mikla fjölbreytni í brautum. Hann býður betri kylfingum að reyna hæfnina en er um leið hæfilega mikil áskorun fyrir kylfinga með hærri forgjöf. Sjá nánar um völlinn Las Americas Golf.
Ef það er áhugi á að leika fleirri daga þarf að hafa samband við söludeildina hjá Úrval Útsýn og við könnum hvort það gangi upp.
Þeir sem hafa ekki komið til Tenerife ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum. Það er af nægu að taka til afþreyingar.
Innifalið: flug með sköttum og flutningi á golfsetti, gisting með morgun og kvöldmat, 5 golfhringir og íslensk fararstjórn.
Sjá nánar um verð í bókunarvélinni. ATH. Ef annar aðilinn ekki í golfi þá er 30.000 kr. afsláttur.
Meira um Tenerife