GOLFFERÐ TIL THAILANDS Í JANÚAR 2012

Hægt er að bóka hinar árlegu golfferðir til Tælands sem vakið hafa gríðarlega lukku meðal farþega okkar. Hér gefst tækifæri til að spila golf við frábærar aðstæður, gista á glæsilegum hótelum og skoða nýjan og framandi menningarheim. Kjartan L. Pálson mun stýra ferðinni, en hann gjörþekkir svæðið enda farið þangað með íslenska kylfinga og aðra ferðalanga árlega síðustu 20 ár.* Ferðirnar til Tælands henta einnig fyrir þá sem ekki spila golf, því landið býður upp á óendanlega möguleika til afþreyingar og allar aðstæður til fyrirmyndar.

Skipulagðar ferðir

Golfdeild Úrval Útsýnar tekur að sér að skipuleggja golfferðir fyrir jafnt einstaklinga sem hópa til Thailands í janúar 2012. Lengd ferðar og ferðadagar allt eftir óskum hvers og eins. Auk þess verðum við með skipulagðar hópferðir með fararstjóra.


Gisting

Hótelin sem við bjóðum eru öll í norður hluta Pattaya. Woodland Suites Resort, þar sem í boði eru "Premium" svítur, liðlega 48 fermetrar að stærð, með öllu sem hægt er að hugsa sér í fyrsta klassa gistingu á Thailandi. Amari Ocean Deluxe Tower glæsileg 5 stjörnu gisting við ströndina. Á efa flottasta gistingin sem við mælum með. Björt og falleg tæplega 50 fermetra herbergin eru búin öllum helstu þægindum sem skapa slíkar lúxusgistingar. Sabai Lodge New Wing, Deluxe pool view og Sabai Empress, Deluxe Empress.


Golfið

Fyrirkomulagið á golfinu verður þannig að fyrirfram er pantað golf fyrir hópinn þrjá daga í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Ef einhver vill spila meira en það mun fararstjórinn eða umboðsaðili ÚÚ í Pattaya sjá um að skipuleggja það rétt eins og á föstu golfdögunum. Ekki þarf að greiða golfið fyrirfram hér heima, eða um leið og ferðina, eins og verið hefur heldur er gert upp við fararstjórann eða umboðsmann ÚÚ á Pattaya áður en lagt er af stað í golfið frá hótelunum. Þannig er golfið einfaldlega "Pay and Play" og hver og einn ræður því þá hvað hann eða hún vilja fara með mikinn tíma og fé í golfið í ferðinni.
Bendum á að þessi ferð hentar líka vel fyrir þá sem vilja dvelja á Thailandi – án þess að spila golf.


Kjartan L. Pálsson

Fararstjórn

Í ferðum okkar verður íslenskur fararstjóri, Kjartan L. Pálsson, á svæðinu en hann hefur verið þar með íslenska kylfinga og aðra ferðamenn árlega undanfarin 20 ár.

Ath. hluti upplýsinga er frá fyrri ferðum okkar. Upplýsingarnar gætu því breyst þegar nær dregur.
Sjá nánar hér >>