Fararstjóri
Kjartan L.Pálsson
Kjartan L. Pálsson
Kjartan Lárus Pálsson er fæddur í Keflavík 6.október 1939.
Hann flutti til Reykjavíkur þegar hann var 7 ára gamall og hefur búið þar síðan.
Kjartan varð blaðamaður á Tímanum árið 1965 og starfaði þar og á Vísi og DV í um 20 ár, lengst af við íþróttaskrif. Með því starfi vann hann nokkur sumur sem fararstjóri fyrir ferðaskrifstofuna Samvinnuferðir –Landsýn í Kempervennen í Hollandi, en hætti svo í blaðamennskunni og snéri sér að fararstjórn á ársgrundvelli. Var hann í fjölda mörg ár fararstjóri á Kanaríeyjum, í Hollandi og á meginlandi Spánar og í Dublin á Írlandi auk annara staða með íslenska ferðamenn.
Síðustu 15 vetur hefur hann verið fararstjóri á Pattaya á Thailandi. Fyrst fyrir Samvinnuferðir-Landsýn en þegar sú ferðaskrifstofa hætti störfum fyrir Úrval-Útsýn.
Kjartan hefur starfað mikið í ferðabransanum með íslenska golfáhugamenn og konur, enda sjálfur þekktur kylfingur og fyrrum landsliðseinvaldur karla í þeirri íþrótt.
Auk þess var hann í yfir 30 ár formaður þess golfklúbbs sem allir íslenskir kylfingar vilja komast í. Það er Einherjaklúbburinn – klúbbur þeirra sem hafa farið “Holu í höggi” í golfinu – en það hefur Kjartan, eða KLP eins og hann er jafnan kallaður, afrekað sex sinnum um dagana.