Ath. hluti upplýsinga er frá fyrri ferðum okkar. Upplýsingarnar gætu því breyst þegar nær dregur.
Ferðin til Pattaya:
Ferðaplan í skipulögðu ferðunum 2012.
Flogið 10. janúar kl. 09.00 með Flugleiðum til London Heathrow. Áfram frá London með Edihat kl. 20.40. Millilent í Abu Dabi kl. 07.40, áfram frá Abu Dabi kl. 09.15 og lent í Bankok kl. 18.15.
Heimflugið er það sama allar 3 brottfarirnar.
Frá Bankok kl. 20.05, lent í Abu Dabi kl. 23.50. Áfram frá Abu Dabi kl. 02.40 og lent í London Heathrow kl. 06.45. Frá London kl. 13.00 og lent í Keflavík kl. 16.00
Þetta þarftu að vita!
Flugið:
Við leitum alltaf að hagstæðasta flugfargjaldi á hverjum tíma. Ef þú hefur séróskir varðandi flugið þá könnum við hvort við getum orðið við þeim.
Farangur:
Munið að láta starfsfólk við innritunnarborð í Keflavík vita að innrita skal farangurinn alla leið til Bangkok.Kannið í leiðinni hvort ekki sé hægt að fá brottfararspjald alla leið til Bangkok við innritun í Keflavík.
Leyfileg þyngd á farangri er yfirleitt 20 kg. Í verðdæmunum sem við gefum upp er miðað við að fljúga með Edihat og þar eru mörkin 23 kg.
Handfarangur:
Almennt má handfarangur vega 5-7 kg og má ekki vera stærri um sig en 56X23X56. Hægt er að fá upplýsingar á heimasíðum flugfélaganna.
Flutningur á golfsettum: .
Það er misjafnt eftir flugfélögum hvort þau rukki aukalega fyrir golfsett. Þetta er einn af þeim þáttum sem þarf að hafa í huga þegar flugið er bókað. Reikna má með allt að 200 evrum fyrir eitt golfsett báðar leiðir.
Í verðdæmunum sem við gefum upp er golfsettið innifalið hjá Edihat, allt að 15 kg.
Þjórfé í golfinu:
Það eru óskrifuð lög á Thailandi að gefa kylfubera (Caddy), sem hver og einn hefur þjórfé eftir hringinn. Þetta er greiðsla sem allir kylfingar sem spila golf á Thailandi verða að greiða. Gjaldið er almennt 200 til 250 bött á caddy fyrir golfhringinn og afhendist honum/eða henni eftir að golfleik er lokið.
Athugið að þetta er ekki caddyfee, sem stundum er tekið fram þegar vallargjaldið er greitt. Það er innifalið í vallargjaldinu en þjórféð er allt annað og því óviðkomandi.
Það er einnig skilda að skilja eftir 20 til 40 bött á mann hjá bílstjórunum sem aka okkur til og frá hótelinu í golfið og bíða þar á meðan að spillað er. Það gjald fer í gluggann hjá honum þegar komið er aftur heim á hótel.
Aðrar góðar upplýsingar í stafrófsröð
Bankar
Bankar eru opnir frá kl.08.30 til kl.15.30 alla virka daga. Þar fyrir utan eru lítil bankaútibú og gjaldeyrisskiptistaðir opnir fram á kvöld og jafnvel allan sólarhringinn.
Drykkjarvatn
Kranavatnið á Thailandi er bragðvont og ekki er ráðlegt að drekka það. Best er að kaupa drykkjarvatn á flöskum og nota það. Á hótelinu eru settar inn á herbergin tvær flöskur af góðu vatni á hverjum degi endurgjaldslaust.
Farsímar
Dýrt er að hringja úr farsíma til Íslands nema þá seint á kvöldin eða um miðja nótt. Símaklefar, kortaklefar er víða að finna og ódýrara að nota þá, eða þá að hringja úr netsíma á Netkaffistöðum.
Símanúmerið úr landi (til Íslands) er 009-354 og svo númerið heima.
Verðlag og tilboð farsímatækja er síbreytilegt – en það er alltaf ódýrara að hringja í gegnum 009 í stað 001 útúr landinu. Munar miklu. Athugið að öll innlend símanúmer byrja á 0.
Fjarðlægðir
Frá flugvellinum við Bangkok til Pattaya eru liðlega 160 km og tekur aksturinn um tvær klukkustundir – fer eftir umferð og kaffistoppi á leiðinni.
Greiðslukort
Hægt er að taka reiðufé út á kort í hraðbönkum sem eru mjög víða á Pattaya. Munið að hafa PIN-númerið með í ferðalagið. Allar betri verslanir, hótel og veitingastaðir og golfvellir taka við almennum greiðslukortum.
Innflutnings og tollareglur
Áfengi og tóbak. Hver lögráða aðili má flytja með sér 200 vindlinga alls (max 250 gr) og einn lítra af áfengi (sterku eða veiku).
Styttur og myndir af Búdda , eða brot af, er óheimilt að flytja úr landi án sérstaks leyfis frá "Fine Arts Department"
Bendum sérstaklega á, að hverjum farþega er heimilt að flytja með sér inn til Thailands eina vídeóvél, fimm filmur, þrjár vídeókassettur og eitt rafmagnstæki. Þessar reglur eru ekki strangar en gilda þó.
Landið
Thailand – land brosandi fólksins - eins og það hefur löngum verið kallað er heimur unaðssemda og skemmtilegra afþreyinga. Hátt í 66 milljón manns búa í Thailandi en landið er um 514 þúsund ferkílómetrar að stærð. Langflestir íbúanna aðhyllast Búddisma. Tæplega helmingur landsmanna fæst við landbúnað og um fjörutíu prósent vinna við verslun og þjónustu af ýmsu tagi. Bangkok er höfuðborgin og er um 200 km frá Pattaya.
Læknaþjónusta
Mjög góð læknaþjónusta er á Pattaya. Fullkomnustu sjúkrahús og læknasetur eru víða í borginni. Ef farþegi þarf á læknisaðstoð að halda þá hafið samband við gestamótöku hótelsins eða hafið strax samband við fararstjórann.
Moskító
Moskítóflugan getur stundum verið aðgangshörð á Thailandi eins og í öðrum heitum löndum. Góð regla er að bera á sig fuglafæluáburð og hylja sig vel í ljósaskiptunum. Verjið sérstaklega ökkla,olboga og leggi. Ekki hafa glugga eða svaladyr opnar eftir að rökkva tekur – nema að hafa gluggatjöldin dregin vel fyrir. Munið að hafið ávallt við hendina fuglafæluvörn og eins "After Bite" til að bera á sig ef maður verður fyrir biti.
Ónæmisvarnir
Það er ekki skilda að fara í sprautur áður en farið er til Thailands, en við mælum með að þau sem eru að fara í sína fyrstu ferð þangað, kynni sér málið á næstu heilsugæslustöð eða hjá sínum heimilislækni.
Peningar
Gjaldmiðillinn í Thailandi er Batt (thb) Smápeningurinn nefnist satang og er til l og 25 Smáaurar eru til l, 2, 5 og 10 bött. Og seðlar eru til í stærðunum 20, 50, 100, 500 og 1000 bött.
Best er að skipta dollurum og evrum á flugvellinum við komuna til landsins. Ekki skipta miklu í einu því það er stutt að fara í skiptibanka á Pattaya og alltaf má fara í hraðbanka þar – og á flugvellinnum við komuna – með greiðslukortið.
En það er ávallt gott að hafa dollara eða evrur með sér í ferðalag eins og til Thailands. Til að skoða gengið á battinu farið inn á www.oanda.com
Rafmagn
Það er 220-240 Volt eins og á Íslandi. Innstungur á rafmagnsklóm eru "amerískar" það er mjóar/flatar.
Skoðunnarferðir
Út frá Pattaya er auðvelt að komast í góðar og skemmtilegar skoðunnarferðir – eins og td til Bangkok, River Kwai og margra annara staða. Slíkar ferðir eru gerðar í samráði við fararstjórann og eru farnar með honum ef þátttaka er næg, eða í hóp með öðrum erlendum ferðamönnum.
Tímatal
Klukkan á Thailandi er 7 kls. á undan Íslandi. Dæmi: Þegar klukkan er 09.00 að morgni á Íslandi er hún 16.00 í Thailandi. Sami tími allt árið um kring.
Á Thailandi er núna árið 2552 og er það ártal notað samhliða hinu vestræna okkar.
Veðrið
Það er ekki sumar, vetur, vor og haust á Thailandi eins og á Íslandi. Þar er það heiti- tíminn, kalditíminn og regntíminn. Í suður Thailandi eru tímabilin bara tvö. HeitItíminn og reg tíminn. Í janúar og febrúar er kalditíminn og í og við Pattaya er veðrið þá milt og hitastigið 25 til 30 gráður á Celsíus. Stundum meir en sjaldan minna!!!
Þótt regntímanum sé löngu lokið í jan/feb geta samt stundum komið hressilega dembur –hitaskúrir- um miðjan dag á golfvellina. Gott er því að hafa regnhlíf eða regnjakka með í golfpokanum.
Vegabréfsáritun
Ferðamenn sem dvelja á Thailandi í meir en einn mánuð í einu þurfa að hafa í sínum fórum sérstaka vegabréfsáritun við komuna þangað. Þau sem eru í 3 eða 4 vikur þurfa ekki að sýna slíkt, en aftur á móti þau sem dvelja þar í 6 vikurnar.
Vegabréfsáritunin fæst hjá sendiráði Thailands í Kaupmannahöfn, www.thaiembassy.dk
Verslanir
Margar glæsilegar "Kringlur" með miklu vöruúrvali er að finna á Pattaya. Einnig litlar og stórar verslanir og mikill fjöldi af mörkuðum. Algengur verslunarmáti á mörkuðum og í mörgum verslunum, leigubílum og víða er "prútt". Oft má ná verðinu vel niður með því að prútta en verið samt vel á verði og munið ávallt að það er þeirra fag að prútta en ekki okkar Íslendinga.
Þjórfé
Það er ekki skilda að gefa þjórfé og Thailendingar taka slíkt frekar sem viðurkenningu á góðri vinnu að sinni hálfu en sem aukagreiðslu eða peningum. Þeir taka að sjálfsögðu við þeim og brosa þá en meir en venjulega.
Hér fyrir ofan er sagt frá þjórfé í sambandi við golfið – sem er skilda!!!
En ef þið eruð ánægð með matinn og þjónustuna á veitingastað er það puttareglan að rúnna tölur af og skilja eftir pening fyrir góða þjónustu og góðum mat.
Á hótelinu er stúlkunnum sem þrýfa herbergin rétt þjórfé. Gerið það snemma í ferðinni eða réttið þeim smáræði í hverri viku. Sama er að segja um vikarpiltana sem sjá um töskurnar og golfsettin okkar. Þið fáið alltaf betri þjónustu og fallegt bros ef þetta er gert.
Öryggi
Það er óhætt að segja að Thailand sé öruggt land, en að sjálfsögðu þarf að vara varlega þar eins og í öllum öðrum löndum. Íslendingar eru orðnir vanir að ferðast og ekki þarf að vera með mörg orð við þá um öryggi á ferðalögum. Góð vísa er samt aldrei of oft kveðin – og hér koma því nokkur atriði sem gott er að hafa hugfast:
* Hafðu farsíma þinn og nafnspjald hótelsins ávallt á þér – hvert sem þú ferð.
* Varastu að hafa peningaveski í rass-eða brjóstvösum.
* Hengið ekki handtöskur á stólbak eða leggið þær frá ykkur.
* Ekki vera með mikil vermæti á ykkur þegar farið er út.
* Hafið vegabréf svo og peninga og dýrmæta hluti ávallt í öryggishólfinu.
* Mundu að í Thailandi er vinstri umferð og gangbrautamenning þar nánast engin.
* Gætið ykkar í umferðinni – Varúð til vinstri og hafið auga með skellinöðrunum.