Belek - Tyrklandi
Belek svæðið í Tyrklandi er orðið mörgum íslendingnum kunnugt fyrir fín hótel og fjöldan af frábærum golfvöllum. Í þetta sinn svörum við hjá golfdeild ÚÚ áhrifum kreppunar með því að bjóða “allt innifalið” pakka á IC Santai hótelinu. IC Santai er 5 stjörnu hótel staðsett á vestur hluta golfsvæðisins. Það lætur heldur minna yfir sér heldur en þau hótel sem við höfum boðið upp á fram að þessu en fær einna hæstu dóma fyrir verð og gæði á öllu Belek svæðinu.
Hótelið er eins og flest önnur hótel á Belek svæðinu í stærri kantinum eða með rúmlega 500 herbergi. Herbergin eru búin öllum helstu þægindum s.s. minibar, gerfihnatta tengingu á sjónvarpi, hárþurku, öryggishólfi og þráðlaust internet. Á hótelinu er fyrsta flokks heilsulind þar sem hægt er að lát líða úr sér eftir góðan dag á golfvellinum. Einnig er boðið upp á fjöldan allan af meðferðum, bæði nudd og fegrunar. Veitingastaðirnir eru 9 talsins meðal annars, kínverskur, japanskur, mexíkanskur, ítalskur og tyrkneskur og barirnir 6 þar af einn vítamínbar. Þar sem við erum utan helsta anna tíma þá má eiga von á að hluti af þjónustu hótelsins s.s.
einstaka bar sé lokaður. Allt innifalið felur í sér morgun-, hádegis- og kvöldverð,
innlenda áfenga og óáfenga drykki og snarl á milli mála
Öll herbergin á okkar vegum hafa sjávarsýn en hótelið stendur við fallega sandströnd.
Golfið
Golfið leikum við á Tat golfvellinum sem er í aðeins um 1km fjarlægð frá hótelinu sem býður upp á akstur á milli. Tat völlurinn er 27 holu skógarvöllur, rétt rúmlega 6.000 metrar af gulum teigum og um 4.700 af rauðum. Við eigum rástíma snemma flesta daga þannig að það gefst góður tími til að leika mikið golf. Innifalið í ferðinni er ótakmarkað golf, þó með þeim skilyrðum að ekki er hægt að bóka auka golf fyrr en fyrri hring er lokið. Verð á golfbíl er 25 evrur og kerru 5 evrur. Ef golfinu er sleppt dragast frá kr. 50.000.-