Hotel Gran Villaitana
Hotel Gran Villaitana stendur við tvo frábæra 18 holu golfvelli sem hannaðir eru af Jack Nicklaus, í mátulegri fjarlægð frá frábærum baðströndum, verslunum, veitingastöðum, skemmtigörðum og næturlífinu í Benidorm. Hótelið opnaði í júlí 2006. Á hótelinu eru 227 frábær herbergi og svítur þar sem gott er að slaka á eftir átök dagsins. 6 veitingastaðir, fjöldi bara og herbergisþjónusta allan sólarhringinn sjá til þess að ekkert skortir og á píanóbarnum er skemmtidagskrá á kvöldin. Golfvellirnir eru par 72 og 62 og henta kylfingum í öllum gæðaflokkum. Eftir golfið er upplagt að hafa það gott á laugarbakkanum, en á hótelinu er fjöldi sundlauga og framúrskarandi sundlaugagarður, auk tennisvalla, barnaklúbbs og leiksvæðis fyrir börn.