
The Education Show 2012 í Birmingham
Tölvu- og hugbúnaðarsýning fyrir fagaðila í skólastarfi
Sýningin er haldin dagana 15.-17.mars í Birmingham. Eins og mörg undafarin ár þá verður Úrval-Útsýn með ferð á sýninguna og er ferðatilhögunin hefðbundin. Flogið er til og frá London : Út þann 14. mars og heim 18.mars. Nánar um ferðatilhögun má sjá neðst í skjalinu.
Þessi glæsilega sýning hentar vel leikskólakennurum og kennurum. Hefð er fyrir því að heilu skólarnir fari á þessa sýningu og sameini sýninguna og skólaheimsókn. Í þeim heimsóknum hafa kennarar þá kynnt sér kennsluaðferðir og annað starf í áhugaverðum breskum skólum í leiðinni.
Skráning á sýninguna er á vefslóð sem gefin er upp hér að neðan.
Sýningin
Skráðu þig hér á sýninguna (prentið út staðfestingu)
Heimasíða Birmingham
Ferðatilhögun
Boðið er upp á flug bæði til og frá London með Icelandair og með Iceland Express. Síðan er einnig hægt að velja um morgun eða síðdegisflug.
Flogið er út á London miðvikudaginn 14.mars og frá flugvelli er farið með rútu beint til Birmingham. Í Birmingham er gist í 3 nætur á Thistle hótelinu, glæsilegu hóteli miðsvæðis í Birmingham, enskur morgunverður innifalinn.
Akstur frá hóteli að sýningarsvæði verður fimmtudaginn 15. mars kl. 9:30 og tilbaka á
hótel kl. 16:00 og föstudaginn 16. mars kl. 9:30 frá hóteli og tilbaka á hótel kl. 14:00.
Laugardaginn 17. mars verður farið með rútu til London og gist þar eina nótt á Thistle hótelinu í við Oxford street. Að okkar mati mjög gott hótel og vel staðsett miðsvæðis. Enskur morgunmatur er innifalinn.
Heimflugið frá London er síðan sunnudaginn 18.mars og getur fólk valið um annað hvort hádegisflug eða kvöldflug.
Hotel Thistle Birmingham
Hotel Thistle Marble Arch London
Verð frá á mann í tvíbýli: 118.500: Education Show Iceland Express Flug
Verð frá á mann í tvíbýli:
132.300: Education Pakki A
Verð frá á mann í tvíbýli:
132.300: Education Pakki B
Verð frá á mann í tvíbýli:
132.300: Education Pakki C
Innifalið í ferð:
• Flug,
• Skattar