Frjálsar íþróttir

Láttu okkur skipuleggja æfingaferðina!

Við hjá Úrvali Útsýn höfum skipulagt mikið af æfingaferðum fyrir íþróttafólk í frjálsum íþóttum. Undanfarin ár hefur það verið mjög vaxandi vegna aukins áhuga á frjálsum íþróttum.

Frjálsar íþróttir eru ein kröfuharðasta íþróttagreinin og þar skiptir aðstaðan höfuðmáli því keppt er í mörgum greinum og kúluvarparinn þarf jafngóða aðstöðu og spretthlauparinn eða stangarstökkvarinn.

Við leitum því stöðugt að nýjum leiðum en ekki síður að auka og bæta þjónustuna á okkar fyrri áfangastöðum sem eru góðir og hafa gefist vel.

Við getum boðið upp á aðstöðu út um allan heim, höfum góða þekkingu og leggjum fyrst og fremst áherslu á góða þjónustu.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar hjá Íþróttadeild Úrvals Útsýnar í síma 585 4000.